20.08.1931
Efri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 129 í D-deild Alþingistíðinda. (1296)
324. mál, Hafnarfjarðarvegur
Flm. (Bjarni Snæbjörnsson) [óyfirl.]:
Ég þarf ekki að fylgja þessari till. minni úr hlaði með mörgum orðum. Í þingbyrjun bar ég fram frv. um nýjan veg milli Hafnarfjarðar annarsvegar og Suðurlandsbrautar og Reykjavíkur hinsvegar. Því frv. var vísað til n. og leitaði hún umsagnar vegamálastjóra um málið, sem lagði til, að því yrði vísað til stj. til frekari undirbúnings. Vegamálastjóri taldi sér ekki fært að segja um það að svo stöddu, hvora leiðina skyldi fara í þessu máli, að lagfæra gamla veginn milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, eða þá að leggja þennan nýja veg. Þó kvaðst hann líta svo á, að ekki væri hægt að gera veginn til frambúðar, nema með því að fara svipaða leið og frv. markaði, því að núverandi vegur fullnægði naumast þeirri miklu umferð, sem er á þessum slóðum. Lagði vegamálastjóri því til, eins og áður getur, að málinu yrði vísað til stj., en lét þess jafnframt getið, að fullnaðarálit sitt mundi verða hægt að leggja fyrir næsta þing. Hvað kostnaðarhlið þessa máls snertir, telur vegamálastjóri, að hann muni verða sama sem enginn, því að unnið verði að því í skrifstofu hans. Taldi hann vel í lagt, ef gert væri ráð fyrir, að 1000 kr. færu í aukavinnu í þessu skyni. — Þá vil ég láta þess getið í þessu sambandi, að þegar rætt var um till. hæstv. forsrh. um framlag úr ríkissjóði til atvinnubóta hér í d. í gær, barst talið að því, hvort þeim 300 þús. kr., sem veittar voru í þessu skyni, skyldi verja til ríkisframkvæmda eða til styrktar bæjarfélögum um þær framkvæmdir, sem þau láta vinna í eigin þarfir, og lét hæstv. forsrh. þá svo um mælt, að til mála gæti komið að verja einhverju af þessari upphæð til þessarar vegarlagningar eða til umbóta á gamla veginum. Ég tel því hina fyllstu ástæðu til þess, að þetta verði íhugað sem vendilegast og hið allra fyrsta, enda farast vegamálastjóra svo orð í erindi sínu til samgmn. út af áðurnefndu frv. mínu, að talað hafi verið um þessa vegarlagningu sem væntanlega atvinnubótavinnu, og sé það rétt athugað og sjálfsagt að flýta rannsókn þessa máls. Ég vænti þess því, þar sem þessi till. mín er í samræmi við till. vegamálastjóra í þessu máli, að hún fái góða að skjóta afgreiðslu hér í hv. d.