11.08.1931
Neðri deild: 26. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1002 í B-deild Alþingistíðinda. (1300)

55. mál, byggingar- og landnámssjóður

Héðinn Valdimarsson:

Ég hélt, að hv. þm. Mýr. ætlaði að ganga dálítið lengra í þessu. Eins og þetta er nú orðað frá landbn., getur hver sá maður fengið styrk, sem sendir skattskýrslu, er sýni, að hann geti ekki af eigin rammleik reist nauðsynlegar byggingar. En miklu æskilegra væri, að það væri tekið fram, hve miklar eignir menn megi eiga, og koma þó undir þetta ákvæði.