01.08.1931
Efri deild: 18. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í D-deild Alþingistíðinda. (1329)

14. mál, dýrtíðaruppbót

Forseti (GÓ):

Ég get ekki verið að afsaka það, þó að ég tæki málið af dagskrá eftir bón hv. 5. landsk. Ég hefi oft tekið mál út af dagskrá fyrir aðra þm., og þá hv. 2. landsk. líka.

Um hitt, hvort hv. þm. muni mæta á mánudaginn eða ekki, get ég ekkert sagt. Þeir hafa ekki enn boðað forföll fyrir þann dag.