01.08.1931
Efri deild: 18. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 136 í D-deild Alþingistíðinda. (1332)

14. mál, dýrtíðaruppbót

Jón Baldvinsson:

Það er alveg rétt hjá hæstv. forseta, að hann hefir oft gefið mér og öðrum leyfi til þess að vera fjarverandi og tekið mál út af dagskrá eftir mínum tilmælum. Var ég sízt að kvarta yfir því, að hæstv. forseti hefði sett mig hjá í þeim efnum. Ég sagði aðeins, að það væri heppilegra að geta vitað það fyrirfram, þegar stórmál eru tekin af dagskrá, því að þá mundi margur verja deginum öðruvísi, ef þm. vissu það fyrirfram.