18.08.1931
Neðri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (1339)
113. mál, verkamannabústaðir
Jón Ólafsson:
Eins og hv. þm. Barð., frsm. minni hl., gat um. þá höfum við hv. þm. V.-Sk., hv. 2. þm. Reykv. og ég ekki getað orðið hv. minni hl. samferða í þessu máli. Við leggjum til, án þess þó að koma fram með það í nál., að frv. þetta nái ekki fram að ganga á þessu þingi, þar sem það er að okkar álíti bæði ótímabært og á mörgum sviðum svo mjög gallað, að við sjáum okkur á engan hátt fært að mæla með því. Fín ástæðan, sem við færum fram gegn þessu máli, er sú, að svo treglega hefir gengið að afgr. það í n. og inn í þessa hv. d., að það virðist þegar fyrirsjáanlegt, að það nái ekki fram að ganga á þessu þingi, ef allt verður með felldu um þingslit. En margar eru þær aðrar hliðar þessa máls, sem hv. minni hl. hefir ekki viljað athuga, eins og t. d. það, að hér er í frv. þessu farið inn á algerlega nýja braut og nýja hugsun í þessu máli, því að þegar frv. lá fyrir þinginu 1929, þá var það þáv. meiri hl. allshn., þeir hv. núv. 3. þm. Reykv., hv. 2. þm. Árn. og hv. þáv. 2. þm. Rang., sem lögðu með frv., en þeir tóku það jafnframt skýrt fram í nál., sem þeir gáfu út, að frv. væri í grundvallaratriðum sniðið eftir byggingar- og landnámssjóði þannig að þetta fé sem þarna er lagt fram. ætti að ganga til þess að greiða vaxtamun þann, sem það hefði í för með sér fyrir byggingarsjóðina að taka lán með háum vöxtum og lána þau aftur með lægri vöxtum. Slíkur er í fám dráttur grundvöllur þessa frv.
Þegar frv. var til umr. 1929, var það reiknað út af ýmsum hér í þessari hv. d., þar á meðal hv. l. þm. N.-M., hversu mikil fjárútlát þyrfti að leggja á landsmenn til þess að standast kostnaðinn við þessar vaxtagreiðslur, sem frv. fól í sér. Og hann komst að þeirri niðurstöðu, að nú fyrst um sinn myndi nægja ein króna á nef hvert í bæjum gegn öðru eins framlagi frá ríkissjóði. Nú sé ég, að í grg. þessa frv., sem hér liggur fyrir, er verið að fara inn á algerlega nýjar leiðir. Þar er hreint og beint tekið fram, að erfiðleikarnir um öflun lánsfjár séu þess valdandi, að fara verði inn á aðrar leiðir til þess að fá féð, og nú er farið inn á leið, sem Alþingi á með öllu eftir að rannsaka, hvort rétt sé að leggja út á. Það er sem sagt, hvort rétt sé að leggja einstökum byggingarfél., sem myndast kunna, lánsfé, sem ríkið eða lánveitandinn á svo engan aðgang að í framtíðinni. Áður en farið er að veita einstökum félögum, í hvaða mynd sem er, lánsfé, sem á að vera ævarandi tillag, þá er betra að athuga vel, inn á hve hála braut hér er gengið. Það tíðkast t. d. hvergi, að ríkið sé að styrkja einstaka menn til þess að þeir geti komizt að vægari vaxtakjörum, en ekki virðist þó fjarri að álíta, að hið sama eigi að ganga yfir þá litlu flokka manna, sem mynda kunna byggingarfélög í kaupstöðum landsins. Þessi félög geta orðið svo mörg sem verkast vill, og ríkið er með frv. þessu skyldað til þess að leggja fram helming fjárins til móts við þessi bæjar- eða kaupstaðabyggingarfélög, en þau eiga svo að vera einkaeigendur að öllu saman, og hafa það til fullrar eignar og umráða. Um þetta er engum orðum farið og engin grg. um það, en þó er þetta algerð röskun á grundvallaratriðum þessa máls.
Nú hefir þessu svo nefnda byggingarfélagi, sem myndazt hefir hér í Reykjavík, ekki tekizt að fá meira lán en 200 þús. kr., og ef ég veit rétt, þá er bærinn búinn að leggja fram tvö tillög til félagsins, og væntanlega hefir ríkissjóður lagt fram sinn hluta, svo að það er eitthvað á annað hundrað þús. kr., sem byggingarsjóðurinn á að vera búinn að fá frá bæjar- og ríkissjóði. En þessu fé, sem fengizt hefir á þennan hátt, er ekki enn búið að koma í byggingar, og ekkert útlit á, að það verði gert fyrr en á næsta ári, en þá hefir bærinn enn á ný lagt fram 1 krónu á nef hvert, eða um 28–29 þús. kr., og ríkissjóður mun þá einnig leggja fé á móti því. Tillagið er því komið langt fram úr því, sem ætlazt var til í upphafi að þyrfti í þessu skyni, meðan sjóðnum var einungis ætlað að vera til vaxtajafnaðar.
Ég get tekið undir það með hv. flm., að það væri e. t. v. þörf á því, að ríkisheildin og einstök bæjar- og sveitarfélög gætu lagt fram fé til þeirra landsmanna, sem mynda með sér félagsskap í því skyni að vinna að þjóðnytjamálum, en ég sé ekki, hvernig því verður við komið, þar sem víðsvegar um land eru skilyrði fyrir félagsskap, eins og t. d. tryggingarfélög. Hvert byggingarfélag, sem myndað er á grundvelli laga þessara, hvar á landinu sem er, á skv. 1. heimild á því að fá þetta ríkissjóðstillag. Ég get því að öllu athuguðu ekki betur séð en að till. hv. minni hl. leiði út í dálitlar ófærur, og hvað þá ef ætti að fara að hækka tillagið, eins og gert er ráð fyrir af hendi flm. Það er beinlínis ætlazt til, að út á 1. veðrétt sé lánað 60%, og sennilega er búizt við því, að útlend lán fáist til þess. En svo virðist vaka fyrir flm., að næstu 25% eigi að koma beint frá bæjar- og ríkissjóði, en þeir, sem kaupa, eigi að leggja fram 15%. Ef menn vilja gera þetta að beinu styrktarmálefni við þá, sem væru styrkþurfi, þá þyrfti að breyta frv. að mörgu eða öllu leyti. Í frv. er það, tekið fram, að menn megi hafa svo og svo miklar tekjur, en mér er ekki grunlaus um, að þeir einir komi í þessi félög, sem ekki eru algerlega ráðalausir með húsnæði, en vilja aftur á móti njóta hinna góðu kjara sjóðsins. Og ef því er þannig farið, þá held ég, að réttara sé að fá einhverja reynslu fyrir þessum félagsskap, áður en við förum að ganga lengra en gert var með l. frá 1929.
Ég held, að það sé ástæðulaust að tala um það, eins og gert er í grg. frv., að erfitt sé að fá lán til slíkra bygginga, jafnvel þótt lána eigi 85% út á byggingarnar, þar sem ábyrgð ríkis- og bæjarsjóðs er fyrir pappírunum. Ég fæ ekki séð annað en að þetta hljóti að verða hin beztu verðbréf, og það getur ekki komið til neinna mála, að erlendum verðbréfakaupendum þyki slík verðbréf illa tryggð.
Ég veit ekki, hvort minni hl. n. hefir gert sér nokkra grein fyrir þessu máli. Það er auðvitað rétt, að full þörf er á því að auka fé byggingarsjóðanna. Það er líka þörf á því að auka fé bæjarsjóðs og flestra stofnana hér á landi. Okkur meiri hl. n. sýndist á þessu stigi málsins brýnni þörf á fé til ýmislegs annars en þessara byggingarfélaga. Það er sjálfsagt, að þegar búið er að byggja svo mikið, að skortir fé til vaxtajafnaðar, að ríkið hlaupi þá undir bagga, en hér er farið fram á algerða röskun á lögunum frá 1929.