18.08.1931
Neðri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (1342)

113. mál, verkamannabústaðir

Héðinn Valdimarsson:

Ég þarf ekki að svara hv. 1. þm. Rang. öðru en því, að þessar 200 þús. kr. til byggingarsjóðs verkamanna, sem hv. þm. er að tala um og virðist halda að séu fyrir allt landið, eru aðeins fyrir Reykjavík, og fengust því aðeins, að sérstök l. voru samþ. um það hér í þinginu. Það er því varla hægt að búast við, þegar Reykjavík hefir ekki getað fengið fé nema með sérstökum ákvæðum, að byggingarsjóðirnir úti um land þyrftu þá ekki að fá slíkt hið sama. ef þeir ættu að geta fengið fé.

Eitt af ákvæðum frv. er einmitt um það, að gera byggingarsjóðum verkamanna víðsvegar um landið það mögulegt að afla sér fjár með hagkvæmum lánum. Það er svo aðkallandi þörf fyrir bættar byggingar víða úti um landið í kaupstöðum og við sjávarsíðuna yfirleitt, að ekki væri of mikið að gert, þótt þetta væri samþykkt.

Ég og flokksmenn mínir höfum jafnan verið fylgjandi byggingar- og landnámssjóði og reynt að efla hann á ýmsan hátt. En ég hygg, að mér sé óhætt að segja það, að ýmsir þeirra, sem njóta hans, eigi við betri kjör að búa heldur en verkamennirnir, sem eiga að njóta verkamannabústaðanna. Þarf ég svo ekki að hafa fleiri orð um málið.