04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í B-deild Alþingistíðinda. (137)
1. mál, fjárlög 1932
Þorleifur Jónsson:
Ég mun ekki eyða miklum tíma til að tala fyrir þeirri brtt., sem ég á hér á þskj. 183, LVII. Till. er um það að veita Guðríði Guðmundsdóttur ljósmóður 200 kr. styrk. Þessi kona hefir gegnt ljósmóðurstörfum í meira en 25 ár og er nú komin undir sjötugt, er að missa sjónina og verður því að hætta við ljósmóðurstörf. Þessi kona er fátæk ekkja. Hún er að vísu hjá börnum sínum, en þau eru einnig mjög fátæk. Hún væntir þess, að Alþingi líti á umsókn sína með velvild, og eins og kunnugt er, eru allmörg fordæmi fyrir því, að aldurhnignum ljósmæðrum, sem lengi hafa þjónað, séu veitt nokkur eftirlaun. Ég held, að í fjárlagafrv. séu um 25 ljósmæður, sem njóta eftirlauna á 18. gr., svo að það er engin furða, þó að fátæk og aldurhnigin kona leggi hér fram beiðni um að fá að njóta slíks hins sama.
Ég skal geta þess, að sumir vilja ekki, að ljósmæðrum séu veitt eftirlaun, nema þær hafi starfað í 30 ár, en ég vil benda á það, að á þingi 1930 var flutt af fjvn. till. um að veita tveimur ljósmæðrum eftirlaun, sem búnar voru að starfa í 20–30 ár, svo að þótt það hafi verið hugsunin upphaflega að veita ekki öðrum eftirlaun en þeim, sem búnar væru að starfa í 40–50 ár, þá hefir sú regla verið brotin, og Alþingi hefir orðið við tilmælum um að veita þenna styrk, jafnvel þó að þjónustutíminn hafi ekki verið orðinn svo langur.
Ég tel réttmætt að bera þessa till. fram, af því, að hér er um að ræða aldraða konu, sem lengi hefir gegnt ljósmóðurstörfum, og er því sambærileg við þær ljósmæður, sem hefir verið veittur slíkur styrkur í fjárlögum. Ég vænti því, að hv. d. geti séð sér fært að taka þessa till. mína til greina. Hér er ekki heldur nema um 200 kr. að ræða; það er sú lægsta styrkupphæð, sem ljósmæðrum er veitt. Það eru ekki nema þær svokölluðu „júbilljósmæður“, sem þjónað hafa í 50 ár, sem fá hæstu eftirlaunin, 500 kr., hinar fá minna, og lágmarkið hefir verið 200 kr. Vænti ég því, þar sem svo mjög er stillt í hóf sem hér, að hv. d. sjái sér fært að taka þessa litlu upphæð til greina.
Þó að ég sé riðinn við eina brtt. aðra en þessa, þá sé ég ekki ástæðu til að minnast á hana, þar sem hv. þm. V.-Sk., sem er þar fyrstur á blaði, hefir talað ýtarlega um hana. Ég ætla ekki heldur að gera aðrar till. að umtalsefni, því að ég býst við, að hv. frsm. fjvn. muni að loknum umr. um þær skýra frá afstöðu n. til þeirra.