10.08.1931
Neðri deild: 25. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1026 í B-deild Alþingistíðinda. (1376)
66. mál, slysatryggingalög
Héðinn Valdimarsson:
Okkur jafnaðarmönnum hefir þótt rétt í þetta sinn að gera þær frekari breytingar á þessum lögum, sem helzt hefir verið krafizt af verkamönnum. Það, sem brtt. fer fram á, er fyrst og fremst að greiða læknishjálp, sem ekki er gert nú eftir slysatryggingarlögunum, og 2/3 umbúðakostnaðar. Ef ágreiningur verður, sker slysatryggingin úr.
Það er svo sjálfsagt að greiða læknis- og lyfjakostnað, að ekkert þarf um það að ræða. Það eru allt bein útgjöld fyrir þá, sem fyrir slysum verða, og því eðlilegast, að tryggingin greiði, en ekki þeir, sem fyrir þessum óverðskulduðu og ófyrirsjáanlegu óhöppum verða.
Ennfremur skulu dánarbætur tvöfaldast frá því, sem nú er, og verði 3 þús., en örkumlabætur 6 þús. kr. Það mun varla valda ágreiningi, að dánarbætur og örkumlabætur séu nú litlar. Þær eru miklu hærri í nágrannalöndunum. Till. okkar ganga þó ekki eins langt og þar tíðkast. Í samræmi við þetta leggjum við til, að þær bætur, sem koma á hvern ómaga, tvöfaldist líka.
Ég hefi ekki haft tækifæri til að athuga, hvernig slysatryggingin er nú stæð, svo að ekki verður sagt, hve mikið verði að hækka iðgjöldin. En þó það yrði að gera, samkv. slysatryggingalögunum, þá þarf ekki að koma með neina till. um það, því að heimild er í lögunum eins og þau eru nú fyrir stjórn slysatryggingarinnar að ákveða iðgjöld eftir því sem með þarf. En ég geri ráð fyrir, að tryggingin hafi staðið sig það vel upp á síðkastið, að það þyrfti alls ekki að tvöfalda iðgjaldið, þótt einhver hækkun yrði.