04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (139)
1. mál, fjárlög 1932
0139Sveinn Ólafsson:
Það er, satt að segja, tæplega tilvinnandi að vera að tala hér yfir tómum stólum, en af því, að innan tíðar dregur að atkvgr., vildi ég drepa með nokkrum orðum á þá einu brtt., sem ég er aðalflm. að að þessu sinni. Till. er á þskj. 194, IV, við 14. gr. XVI. 2, og er meðflm. minn hv. 1. þm. N.-M. Till. er smávægileg, og býst ég við, að hv. þdm. muni ekki vaxa í augum að ljá henni fylgi sitt. Með henni er farið fram á, að í stað 5000 kr., sem ætlaðar eru í frv. til rekstrar húsmæðraskólans á Hallormsstað, komi 8000 kr., eða til vara 7000 kr.
Eins og flestum hv. þdm. er auðvitað kunnugt, tók þessi skóli til starfa síðastl. haust og hefir þannig ekki starfað nema einn vetur. Eru líkur til þess, að skólinn verði fullskipaður næsta vetur, en hann er ætlaður 30–40 nemendum. Þessi rekstrarstyrkur, sem skólanum er ætlaður samkv. fjárlagafrv., er of lágur, eins og allir hljóta að sjá, þótt skólinn e. t. v. geti flotið á honum í svip. Auk þess er á það að líta, að skólinn nýtur ekki sömu vilkjara sem aðrir skólar svipaðir, t. d. eins og húsmæðrafræðsludeild Laugaskólans getur notið vegna samvinnu við annan skóla. Á Laugum er sameiginlegt skólahús og heimavist fyrir karla og konur og sömu kennarar að mestu leyti kenna hvorumtveggja. Slíkan stuðning hefir skólinn á Hallormsstað ekki frá neinum öðrum skóla og er því nauðsynlegt að hækka styrkinn til hans verulega. Ég fer þá ekki fleiri orðum um þetta og læt ráðast, hvernig um þessa till. fer.
Ef hv. d. hefði verið fullskipuð, hefði ég séð ástæðu til að minnast með nokkrum orðum á þann svip, sem virðist vera að færast yfir fjárl. að þessu sinni og lýsir vonleysi um atvinnu og afkomu hjá þeim, sem við sjóinn búa. Auk þess mætti vel drepa á einstakar till. lítillega, sem lúta að miður þörfu efni. En þar sem svo fáir þm. eru viðstaddir, mun ég láta það að mestu niður falla. Þykir mér þó miður, að hv. þm. Seyðf. skuli ekki vera viðstaddur, því að ég hefði sérstaklega viljað víkja nokkrum orðum að ræðu hans. Þessi hv. þm. kom fram með þá einkennilegu kenningu, — og hefir henni þó reyndar skotið hér upp áður —, að því fé, sem samkv. fjárl. er ætlað til að bæta úr atvinnuskorti, ætti að verja til atvinnu í bæjunum. Út af þessu vildi ég segja það, eins og ég líka tók fram við 2. umr. fjárl., að þegar svo stendur á, að verið er að veita ríkisfé til að skapa atvinnu, þá finnst mér það henda á litla gerhygli í fjármálum að leggja til, að þessu fé sé fyrst og fremst varið til atvinnu í bæjunum, þar sem minnstar eru vonir um arðvænlegar framkvæmdir, en aðalvinnan utan vertíða er oftast vegagerð eða álíka arðlítið starf, sem ekkert verðmæti skapar, fyrr en þá eftir langan tíma, ef byggð helzt og þróast. Mér finnst, að verja ætti þessu fé til að skapa ný verðmæti, eins og t. d. að rækta óbrotið land, því að hin ræktaða jörð gefur alltaf eitthvað í aðra hönd þeim, sem að henni hlúa. Og það er nú einu sinni ómótmælanlegt, að atvinnuleysið kreppir að okkur fyrst og fremst vegna þess, að fólkið heldur sig þar, sem bjargarvonin er minnst og árangur starfsins hæpnastur. Ég veit það að vísu, að þessi skoðun hv. þm. Seyðf. er ekki ný, eins og ég líka hefi tekið fram í öðru sambandi, því að svo má nú heita, að hún sé orðin rótgróinn fordómur hjá mörgum mönnum í bæjum og verstöðvum; en hinsvegar veit ég það líka, að til þess hlýtur að draga fyrr en varir, að hugsandi mönnum verði það ljóst, sem ég hefi bent á, að flóttinn úr sveitum að sjó leiðir til hættu og efnalegs ósjálfstæðis. En neyðin kennir naktri konu að spinna, segir máltækið forna, og hún verður líklega í þessum efnum bezti kennarinn.
Ég hefi þessi orð ekki fleiri. Nafn mitt er að vísu tengt við tvær till. aðrar, en ég ætla meðflm. mínum að mæla fyrir þeim. Skal ég svo ekki tefja tímann meira við þessa umr., nema mér gefist sérstakt tilefni til.