04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (140)
1. mál, fjárlög 1932
Steingrímur Steinþórsson [óyfirl.]:
Nafn mitt er aðeins tengt við eina till. að þessu sinni, 183, XXVIII, þess efnis, að framlagið til bryggjugerða og lendingarbóta verði hækkað úr 20 þús. kr. upp í 30 þús. kr. Flyt ég þessa till. ásamt hv. samþm. mínum. Er sú tilætlun okkar, að þessi hækkun renni til lendingarbóta á Sauðárkróki. Hefir áður verið lagt nokkuð til þessa í fjárl., en nú er hin brýnasta þörf á, að þar sé við aukið, því að það er mjög bagaleg vöntun á sæmilegri lendingu á þessum stað, og er þessi vöntun því tilfinnanlegri sem um nokkra útgerð er þarna að ræða. Ég sé, að hv. fjvn. hefir nú borið fram till. um það, að tillagið til bryggjugerða og lendingarbóta verði hækkað úr 20 þús. kr., eins og það var ákveðið við 2. umr., upp í 32500 kr. (183, XXVII). Höfum við samþm. minn miðað okkar till. við upphæðina, eins og hún var í frv. við 2. umr., en að réttu lagi ætti hún að miðast við upphæðina, eins og hún verður samkv. till. fjvn., sem væntanlega verður samþ., og leyfi ég mér að vænta þess, að hæstv. forseti taki þetta til greina við atkvgr., því að eins og kom fram í ræðu hv. frsm. n., ætlast n. ekki til, að þessi hækkun gangi til lendingarbóta á Sauðárkróki. Ég sé ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, og það því siður sem svo fáir þm. eru viðstaddir. Er þetta hin nauðsylegasta fjárveiting, því að þessum stað, sem liggur fyrir opnu hafi, ríður það á miklu, að hægt verði að gera þar sæmilegar lendingarbætur. Vænti ég því þess fastlega, að hv. d. samþ. þessa till., enda eru fáar fjárveitingar jafnarðvænlegar sem þessi og aðrar slíkar.
Að því er snertir aðrar brtt., mun ég sýna afstöðu mína til þeirra við atkvgr. Þó vildi ég drepa lítillega á till. frá hv. þm. Ak. og hv. þm. Dal., þess efnis, að framlagið til flóabátanna verði hækkað úr 89 þús. kr. upp í 91 þús. kr. (183, XX). Vil ég eindregið mæla með þessari till., einkum með því, að styrkurinn til Eyjafjarðarbátsins verði hækkaður um 1000 kr. Hefir hv. þm. Ak. bent á, hversu mikla þýðingu ferðir þess báts hafi fyrir Eyjafjörð, svo að þar hefi ég engu við að auka, en ég vildi hinsvegar leyfa mér að benda á, að þessar ferðir hafa engu minni þýðingu fyrir Skagafjörð, því að svo má heita sem þar sé ekki öðrum samgöngum til að dreifa. Eru þessar samgöngur hinar nauðsynlegustu fyrir héraðið, m. a. af því, að þær gera héraðinu kleift að hagnýta sér sumarmarkaðinn á Siglufirði fyrir afurðir sínar. Er mikið í húfi fyrir héraðið að missa ekki af þessum markaði, en hans er enginn kostur að njóta, ef þessar samgöngur leggjast niður. Ég vildi því eindregið mæla með þessari till. og vænti þess, að hún nái fram að ganga.