04.08.1931
Neðri deild: 20. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 214 í B-deild Alþingistíðinda. (142)

1. mál, fjárlög 1932

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Ég býst við, að það hlýði að mæla nokkur orð fyrir brtt. mínum, þótt fáir þm. séu viðstaddir.

Ég á hér á þskj. 194 nokkrar till. ásamt hv. þm. Borgf. Tvær af þeim eru um efni, sem við fluttum einnig brtt. um við 2. umr. fjárl. Þá liði berum við nú fram aftur, aðeins með nokkru lægri upphæðum.

Fyrri liðurinn er undir VII, um styrk til Kvenfélagasambands Íslands. Við höfum fært þetta niður í sömu upphæð og því hefir verið ætlað áður og er nú í fjárlögum, aðeins 2 þús. kr. Þegar litið er á það, að Kvenfélagasambandið hefir sótt um allmiklar fjárhæðir, sem alls nema 85 þús. kr., þá verður ekki sagt, að við förum frekjulega í málin, þegar farið er fram á, að veittar séu 2000 kr. til þess. Það mætti virðast, að þessi litla fjárveiting væri þá heimska ein. En þess ber að gæta, að Kvenfélagasambandið hefir hugsað sér að vinna fyrir þessa háu upphæð margháttaða starfsemi, en þessar 2000 kr. myndu þó nægja til að halda við nokkrum vísi að þeirri starfsemi, sem sambandið hefir þegar tekið upp. Alþingi ætti því ekki að fella þenna styrk alveg niður og lama þannig þessa starfsemi, t. d. leiðbeining í garðrækt, sem er byrjuð og gæti áreiðanlega orðið til mikils gagns. Þótt þessi upphæð sé lítil, væri þó samþykkt hennar nokkurskonar vingjarnlegt augnaráð eða upphvatning frá Alþingi, er sýnir, að það vilji, að Kvenfélagasamhandið haldi áfram sínu gagnlega starfi.

Annar liðurinn er um styrk til Stórstúkunnar. Ég skal ekki fjölyrða um þetta mál, sem er borið fram á hverju þingi. Við 2. umr. var felld till. um að hækka styrkinn upp í 12 þús. kr.. en nú berum við fram till. um 10 þús. kr. í öruggri vissu um, að það verði samþ., enda er það nauðsynlegt til þess að Stórstúkan geti haldið áfram sínu starfi.

Þá berum við fram brtt. III. á sama þskj., um að veita stúdentaráði háskólans sömu upphæð. 1200 kr., og það hefir í núgildandi fjárlögum, til þess að starfrækja upplýsingaskrifstofu. Stúdentaráðið hefir haldið þessari skrifstofu uppi töluvert lengi. Hún var stofnuð 1920, að miklu leyti fyrir áhuga Lúðvígs Guðmundssonar skólastjóra, sem annaðist þetta starf með miklum dugnaði um nokkurra ára skeið. Það sýndi sig strax, að mikil þörf var á henni, og starf hennar hefir aukizt jafnt og þétt, síðan hún tók til starfa. Við henni tók svo Lárus Sigurbjörnsson, en nú hefir háskólaritarinn, Pétur Sigurðsson, tekizt starfið á hendur. Þetta hefir verið áhugastarf, sem menn hafa orðið að vinna fyrir ekkert eða sama og ekkert. En það getur ekki gengið til lengdar. Störfin eru að verða það umsvifamikil, að menn, sem eru við nám eða önnur störf, sem e. t. v. eru ekki einu sinni sæmilega launuð, geta ekki offrað kauplaust svo miklum tíma, sem starfið við upplýsingaskrifstofuna krefst nú. Starf skrifstofunnar er að veita þeim mörgu stúdentum, sem ætla til annara landa til náms, upplýsingar um, hvert þeir geti leitað til þess að nema hverja grein vísindanna, hvernig náminu sé hagað í ýmsum háskólum úti um heim, og gefa upplýsingar um námsefni, enda eru menn oft ekki ákveðnir í vali námsgreinar að stúdentsprófi loknu. Í þessu skyni hefir upplýsingaskrifstofan fengið mjög mikið af skólaskýrslum og lýsingum á námsferli í ýmsum háskólum, og stendur hún nú í sambandi við háskóla í allt að 20 löndum. Einnig hefir hún smám saman fengið handbækur, sem eru nokkuð dýrar, þar sem lýst er ýmsum námsefnum og hvernig kennslunni er hagað. Þessi skrifstofa hefir starfað við mikinn fjárskort og búið að mjög lélegum og ófullnægjandi húsakynnum, og hefir þetta orðið nokkuð í vegi fyrir því, að upplýsingaskrifstofan gæti rækt starf sitt vel og komið í lag þessu bókasafni sínu, sem mun vera um 2000 pésar.

Ef litið er á, hvort nokkurt verkefni sé fyrir slíka skrifstofu, má geta þess, að nú eru um 90 ísl. stúdentar við ýmiskonar nám við erlenda háskóla, alls í 11 löndum. Langflestir eru í Þýzkalandi, þar næst er Danmörk ennþá, þá kemur Frakkland, þá England, Bandaríkin, Noregur, Svíþjóð, Sviss. Austurríki, Spánn og Tjekkoslóvakía. Þessir stúdentar eru bæði frá Reykjavíkurskóla og Akureyrarskóla, þó eðlilega séu miklu fleiri frá Reykjavíkurskólanum. Það er fróðleg skýrsla, sem stúdentaráðið hefir sent hv. þdm.; hún sýnir, hvar stúdentar stunda nám og hvaða námsgreinir þeir hafa valið sér. Á síðustu árum hafa einnig bætzt við námsefni, sem ekki voru stunduð áður, og það er ekki sízt að þakka upplýsingaskrifstofunni. En auk þess, sem hún hefir reynt að leiðbeina stúdentum, sem fara til annara landa, hefir hún einnig útvegað fátækum stúdentum atvinnu og mörgum fæði fyrir að kenna börnum. Eins hefir upplýsingaskrifstofan staðið fyrir þeim fargjaldsívilnunum, sem Eimskipafélagið hefir veitt stúdentum landa á milli.

Yfirleitt er óhætt að segja, að upplýsingaskrifstofan hefir svo margháttað og nytsamt starf með höndum, sem hefir verið unnið með svo mikilli ósérplægni, að Alþingi ætti ekki að fella niður þenna styrk, sem hér er farið fram á. Skrifstofan nýtur styrks úr sáttmálasjóði, eftir því sem háskólaráðið hefir talið sér fært að veita henni, en sá styrkur hrekkur ekki nándar nærri fyrir útgjöldunum. Vænti ég þess, að hv. d. viðurkenni þessa gagnlegu starfsemi og veiti þennan umbeðna styrk.

Þá er það till. ein, sem við berum fram saman, hv. þm. Borgf. og ég, á þessu sama þskj. VII, 2, um að Gagnfræðaskóli Reykvíkinga fái 3000 kr. styrk.

Þessi skóli var stofnaður í sambandi við það, að takmörkuð var tala þeirra, sem teknir voru inn í menntaskólann. Því höfðu allmargir gengið undir inntökupróf og staðizt það. En þá var svo fyrirskipað, að ekki skyldi taka nema 25 nemendur í 1. bekk skólans, því að það þurfti að koma upp fatasnögum í skólanum, og auðvitað þurfa þeir að vera þar eins og nemendurnir. En af því að mörgum, sem vildu setja börn sín til mennta, var illa við, að þeim væri þannig bægt frá, réðust aðstandendur þessara barna ásamt fleiri áhugamönnum í það að koma upp sérstökum skóla í bænum af eigin rammleik, til þess að veita þessu sama námsfólki sömu kennslu í sömu greinum og við gagnfræðadeild menntaskólans og sjá, hvort ekki kynnu að leynast þarna góð námsmannaefni, þótt þau hefðu ekki fengið mjög háa einkunn til að byrja með. Þegar þetta spurðist, voru ýmsir fleiri, sem vildu koma börnum sínum í skólann, og þegar á fyrsta vetri varð tvísettur bekkur.

Ég kynntist þessum skóla, þar sem ég kenndi í annari deildinni. Ég fann, að þar ríkti áhugi og góður andi, og framkoma nemendanna var einstaklega góð. Kennararnir voru yfirleitt vel valdir, enda ekki nema vanir menn til þess teknir. Nú hefir þessi skóli starfað í 3 ár og útskrifað sína fyrstu gagnfræðinga. Reynslan hefir orðið sú, að alltaf hefir verið tvísett í bekkjunum, deildirnar eru orðnar sex, og skólafólkið mun hafa verið í vetur 129 nemendur, svo að þetta er orðinn einn af stærstu skólum landsins. Þeirri reglu hefir verið haldið, að kenna sömu námsgreinir og í menntaskólanum, nema þýzka er kennd þeim, sem þess óska. Skólanum voru svo veitt prófréttindi í vor af hæstv. stj. Við prófið fór þannig, að 13 stóðust hið meira próf, sem veitir rétt til upptöku í lærdómsdeild menntaskólans. Til þess þarf að fá 5,67 stig í meðaleinkunn. En 16 stóðust prófið með lægri einkunninni, neðan við 5,67, en ofan við 3,75 stig.

Hvað sem menn annars segja um nauðsyn þessa skóla, þá er það ákaflega undarlegt, ef svona stór skóli, sem enginn hefir sagt neitt illt um eða kvartað undan með rökum, á að vera eina skólastofnunin á öllu landinu, sem ekki fær að njóta styrks af opinberu fé. Ef maður setur einhversstaðar upp skólaholu og segir unglingum til einn vetur, þá getur hann fengið styrk, ef hann fær ákveðna tölu nemenda. En þessi skóli með völdu kennaraliði, og bar sem svo mikil kennsla er veitt og nám stundað, ætti einn allra skóla á landinu að starfa styrklaus frá ríkinu.

Mér þótti ákaflega leiðinlegt, þó að það kæmi mér ekki alveg á óvart, að fjvn. skyldi ekki sinna eins sjálfsagðri beiðni og þessari. Ég hefi enga ástæðu heyrt á móti þessu máli aðra en þá, að einn nm. fór að minnast á skólastíl, þar sem hefði verið talað ógætilega um hæstv. stj. Það væri auðvitað gaman að vita, hvaða pædagogiskum reglum á að beita til þess að koma í veg fyrir, að nemandi í einhverjum skóla skrifi í gamni eða ungæðishætti stíl, þar sem farið er óviðurkvæmilegum orðum um heldri menn í þjóðfélaginu. Mann hlýtur að furða stórkostlega á því, að þessi stíll skuli hafa verið gerður að stóru pólitísku númeri hjá stórum landsmálaflokki, en síður á hinu, þó að stíllinn hafi verið skrifaður.

N. virtist að öðru leyti ekki vera óvinveitt þessum skóla, og það voru mér mikil vonbrigði, að hún skyldi ekki vilja flytja till. þessa. En hinsvegar vona ég, að Alþingi geri sér ekki þá hneisu, að fella fjárveitingu til þessa skóla.

Ef menn óttast mjög, að í þessum skóla séu eintómir Reykvíkingar, og stundum er það eitt nægilegt banamein fyrir tillögur, þá er svo alls ekki, og skólastjórinn hefir sagt mér, að þangað komi fólk úr öllum landsfjórðungum, t. d. koma menn þangað frá Akureyrarskólanum, ungmenna- eða gagnfræðaskólanum á Ísafirði, í Vestmannaeyjum, og yfirleitt alstaðar að.

Þó að farið sé fram á 3000 kr. styrk, er það í rauninni hlægileg upphæð. Þetta er aðeins lítil viðurkenning þess, að menn viti, að skólinn sé til. Þessi sama upphæð var veitt, þegar skólinn var aðeins einn bekkur, og væri því rétt að fara fram á 6, 7 eða 8 þús. kr., þar sem hann hefir stækkað svo mjög síðan, en ekki kærði ég mig um að ganga svo langt, enda legg ég fullt eins mikið upp úr því að fá viðurkenninguna eins og að fá peningana. Bæjarstj. Reykjavíkur hefir styrkt skólann ríkulega með fjárframlögum. fyrsta ári lagði hún fram 7500 kr., á næsta ári 10000 kr. og á þriðja ári 15000 kr. úr bæjarsjóði. Þar fyrir utan hafa verið lögð há skólagjöld á nemendurna. Þeir borga nákvæmlega helmingi meira en í Gagnfræðaskólanum í Reykjavík.

Þá er það brtt. á þessu sama þskj., 194, XI, sem við flytjum saman, hv. þm. Borgf. og ég. Hún er stíluð sem brtt. við LXIII. brtt. á þskj. 183 frá fjvn., og er um heimildina til þess að greiða Eimskipafélaginu styrk, ef í nauðir rekur. N. var öll sammála um að hækka styrkheimildina úr 85 þús. upp í 150 þús. kr., en svo náði samkomulagið ekki lengra. Við lögðum sérstaka áherzlu á það, að fellt væri burtu það ákvæði, sem nú er reynt að koma inn, og var í fjárlagafrv. stj. bæði í vetur og nú, en ekki hefir áður staðið í fjárlögum, að stj. sé heimilað að kaupa hluti í Eimskipafélaginu og styrkja það á þann hátt. Þessi stefna hefir áður komið fram hér á þingi. Ég hefi þá tekið þátt í umr. um málið og vil ekki eyða tíma í að endurtaka röksemdir minar gegn þessari aðferð. En það mega allir vita, að hlutafé, sem eingöngu er greitt til þess að það gangi í rekstrarkostnað, myndi heyra undir það, sem venjulega er kallað „svindil“, og gengur ekki út á neitt annað en að úþynna hlutafé félagsins, þannig að hvert þúsund eða hundrað verði þeim mun minna virði. Þetta er góð aðferð fyrir þá, sem vilja, að Eimskipafél. verði hægt og hægt ríkiseign. Með þessum hætti verður hlutaféð lítils virði, en ríkið greiðir árlega vissa fjárfúlgu inn í rekstur félagsins, og að lokum myndu eigendurnir ekki kæra sig um að eiga þessi útþynntu hlutabréf, — og félagið er orðið þjóðnýtt. Það er ofur eðlilegt, að þingmenn Alþýðuflokksins hafi verið þessu hlynntir, en það sætir furðu, ef þm. annara flokka geta lagt þessu lið. Ef Alþingi vildi nota sér neyð Eimskipafélagsins til þess að eignast það, þá er hreinlegra að gera það með öðrum hætti en þessum, sem er ákaflega svindilkenndur.

Í fjárlagafrv. er þetta ekki annað en heimild, og það má vera, að óhætt væri að láta hana standa, því að stj. mundi ekki nota hana. En það er ekki vanvirðulaust að láta þetta standa í fjárl., þar sem hér er ekki um stofnfé að ræða, heldur rekstrarfé, sem verður greitt vegna þess, að tekjur félagsins hrökkva ekki fyrir gjöldum. Um hitt atriðið, að binda styrkinn til félagsins vissum skilyrðum, gat okkur ekki komið saman. Meiri hl. vildi setja rekstur og stjórn félagsins undir eftirlit ríkisstj. Í fyrstu fannst mér það ekkert fráleit hugsun, að félag, sem hefir svo háan styrk úr ríkissjóði, sé undir nokkru eftirliti af ríkisstj. hálfu. En því betur sem ég hugsaði um þetta, því óþarfari og skaðlegri fundust mér slík ákvæði. Þau eru óþörf vegna þess, að ef ríkisstj. vill, þá getur hún sett félaginu skilyrði um áætlanir, ferðir o. fl. og fengið það til þess að haga starfi sínu og siglingum á annan hátt en það gerir nú. Félagið verður þá auðvitað að gera allt sem stj. vill, til þess að fá þann árlega styrk úr ríkissjóði, sem því er brýn nauðsyn á að fá. Og þessar ráðstafanir eru skaðlegar, þar sem það er alveg augljóst mál, að slík íhlutun stjórnarvalda landsins myndi verða til þess að spilla trausti félagsins á allan hátt. Þetta eftirlit myndi ekki hvað sízt spilla fyrir félaginu hjá þeim aðiljum, sem það þarf allra mest að hækka í áliti hjá, nefnilega kaupsýslumönnum landsins, sem félagið annast flutninga fyrir o. s. frv.

Ég held, að Alþingi vinni móti sjálfu sér, ef það setur félaginu þetta skilyrði. Það verður ekki til annars en að gera félagið enn meir styrkþurfa. Það væri líkt eins og ef hreppur, sem hefði margar fjölskyldur, sem berðust í bökkum, og vildi bæta úr ástandinu, geri svo einmitt ráðstafanir, sem leiddu til þess, að fjölskyldurnar yrðu óhjákvæmilega að fara á hreppinn. Auðvitað má segja, að það þurfi líka á hjálp landsins að halda til annara fyrirtækja og á öðrum sviðum, en starf Eimskipafélagsins er þó þannig vaxið, að annaðhvort verður að gera því kleift að halda áfram starfi sínu, eða þá að ríkið taki upp samskonar starfsemi og það hefir með höndum. Við hv. þm. Borgf. komumst því að þeirri niðurstöðu, að það myndi langheilbrigðast að binda ekki styrkinn til félagsins neinum skilyrðum, heldur hafa hann sem heimild í fjárl., ef félagið þyrfti á honum að halda.

Þá er lokið þeim till., er við flytjum saman, hv. þm. Borgf. og ég. Þá eru eftir tvær brtt., sem ég flyt einn, og skal ég gera nokkra grein fyrir þeim.

Fyrri brtt. er á þskj. 194, V. 1. tölul., um að Vísindafélagi Íslendinga verði greiddur 1000 kr. styrkur úr ríkissjóði. Þetta félag hefir, að því er ég held, aldrei haft neinn styrk í fjárlögum Það var stofnað fyrir nokkrum árum fyrir forgöngu nokkurra háskólakennara, en er þó að engu leyti bundið við háskólann, heldur samanstendur það af kunnáttumönnum vorum í öllum þeim vísindagreinum, sem við á annað borð eigum kunnáttumenn í. Félagið heldur fundi, þar sem fluttir eru fyrirlestrar um vísindaleg efni. Ennfremur hvetur félagið unga menn til þess að gefa sig að ýmiskonar rannsóknum, og kemur svo ritgerðum þeirra í ýms erlend rit, sem fjalla um vísindaleg efni. Þannig hefir einn þessara manna rannsakað gosstöðvar, annar gróðurlíf í Hrísey, þriðji jökla o. s. frv. Félagið hefir gefið út átta rit á ýmsum tungumálum. Er útgáfa þeirra lítt arðvænleg, sem nærri má geta, þar sem sárafáir kaupa slík rit, en þau eru send ýmsum fræðistofnunum og háskólum út um allan heim, og verða þannig til þess, að erlendar þjóðir kynnast því, að eitthvað er þó unnið að vísindalegum málum hér á norðurhjaranum. En í staðinn fyrir þessi litlu rit okkar fær svo félagið mörg hinna merku og miklu rita stórþjóðanna, og hefir félagið þannig eignazt hið prýðilegast safn ýmiskonar vísindalegra sérfræðirita. Fer safn þetta vaxandi með ári hverju og er hið verðmætasta að öllu leyti.

Félagið hefir fleytt sér áfram með lítilfjörlegum styrkjum úr Menningarsjóði og Eggertssjóði, en bæði eru þeir ófullnægjandi og eingöngu bundnir við náttúruvísindi, svo að afleiðingin er sú, að hinar humanistísku greinar, málfræði, saga o. fl., hafa orðið útundan. Vilji Alþingi nú veita félaginu þenna lítilfjörlega og sanngjarna styrk, sem hér er farið fram á, þá verður félaginu þar með gert kleift að verja nokkru til þessara greina, sem hinir umræddu sjóðir ná ekki til.

Seinni brtt. er sömuleiðis á þskj. 194, V. tölul. 2, og fer fram á, að veittar verði 4000 kr. til tónlistarskólans. Það hefði nú ekki verið úr vegi að nota þá miklu kyrrð, sem ríkir hér í salnum, til þess að halda dálítinn fyrirlestur um þetta efni, meðan hv. þm. eru að horfa á, hvernig dr. Aljechin brytjar niður taflmennina okkar niðri í K.-R.-húsi, en af því að mig langar til þess að horfa á hann líka, þá ætla ég að stytta mál mitt.

Þegar ég man fyrst eftir, var tónlistarkunnátta hér á lágu stigi, og fáir, sem gáfu sig að þeirri list. Þegar hljóðfæri fóru svo að flytjast hingað að ráði, þá léku menn auðvitað á þau, en flestir án nokkurrar tilsagnar. Ég man eftir fiðluleikurum, sem þóttu góðir, og lært höfðu án tilsagnar, — því um annað var naumast að ræða —, en sannleikurinn var sá, að enginn var til, sem sagt gæti, hvort það væri mikil list eða ekki, sem verið var að fara með. Svo fóru einstaka menn að fara út til frekara náms, og er þeir komu aftur, þá sáu þeir, hve skammt við Íslendingar vorum komnir í þessum efnum. Þegar samgöngur urðu greiðari við önnur lönd, þá tóku líka að koma hingað erlendir tónlistarmenn við og við, og þeir sýndu okkur líka, hve langt við stóðum að baki öðrum þjóðum í þessari list. Og nú eru menn hættir að láta sér það nægja, að Íslendingar standi öðrum að baki, og farnir að gera kröfur til þess, að hljóðfærasláttur sé hér ekki lakari en í öðrum löndum.

Hljómsveit Reykjavíkur var stofnuð fyrir 6 árum og hefir starfað síðan. Starf hennar hefir verið óeigingjarnt áhugastarf og hefir ekkert gefið í aðra hönd. Meðlimir hennar hafa lagt á sig mikið starf til þess að læra þessa list og hafa æft saman stór tónverk með mikilli elju og þrautseigju. Höfðu þeir von um að geta smám saman elft hljómsveitina svo, að hún yrði í líkingu við hljómsveitir annara landa. Þá komu hingað þýzkir hljómlistarmenn, sem brutu ísinn og sýndu fram á það, að hljómlistarmenn okkar yrðu að byrja algerlega á undirstöðunni og læra í nokkur ár, ef þeir ættu að geta náð því marki, sem þeir höfðu sett sér. Og það var samróma álit manna, að eina ráðið til þess að komast á réttan grundvöll, væri það að stofna tónlistarskóla, sem gæti veitt allmörgum mönnum í einu fullnægjandi tilsögn í hljómlist. Þetta var reyndar mjög djarft fyrirtæki, en skólinn komst þó á laggirnar síðastl. haust fyrir fádæma áhuga nokkurra manna. Skólagjöld voru allhá, og þeir menn, sem að skólanum stóðu, lögðu á sig mjög há mánaðargjöld til þess að skólinn gæti starfað. Fyrir skólastjóra var valinn Páll Ísólfsson. Um fjörutíu nemendur gengu í skólann og hafa flestir þeirra tekið ótrúlega miklum framförum. Fyrir kennara voru valdir þrír útlendir hæfileikamenn. Skólinn hefir ekki starfað nema síðastl. vetur, eins og áður er sagt, en þriggja ára nám þarf til þess að nemendur hans verði fullnuma. En örðugleikarnir á því að halda skólanum áfram eru mjög miklir. Það er ætlunin, að skólanum verði hagað nokkuð öðruvísi næsta vetur, ef hann getur haldið áfram, að hann verði rekinn með meiri sparsemi og gefi sig eingöngu að kennslunni, en haldi ekki hljómleika fyrir útvarpið í jafnríkum mæli og síðastl. vetur. Þá er og tilætlunin að komast af með einn fjölhæfan útlendan kennara, sem getur kennt á mörg hljóðfæri.

Ég veit ekki, hvernig fer fyrir skólanum, ef Alþingi neitar honum um þenna styrk. Reyndar þýðir ekkert að vera að rökræða um þetta hér, því að ég býst varla við því, að orð mín muni tolla við stóla hv. þm., er þeir setjast í þá til atkvgr. Ég skal þó benda á það, að það eru ekki minna en ca. 100 þús. kr., sem árlega renna í vasa útlendra hljómlistarmanna, sem starfa hér við ýms fyrirtæki. Þetta er ekkert smáræðisfé á okkar mælíkvarða. Ef tónlistarskólinn fengi að starfa, þá myndi hann gera okkur færa um að taka þetta í okkar hendur eftir nokkur ár og útrýma algerlega þeim ósið, sem nú ríkir í þessum efnum. Yrði því samþykkt þessarar brtt. hinn mesti búhnykkur fyrir þjóðina.

Ég hefði viljað segja fleira um þetta mál, en af því að enginn hv. þm. er í sæti sínu, að undanteknum hæstv. forseta, og ég get búizt við því, að hann fái mér lyklana þá og þegar, og biðji mig að loka á eftir mér þegar ég hafi lokið ræðu minni, þá fer ég heldur niður í K.-R.-hús aftur til þess að horfa á skákmeistarann. Svo þakka ég fyrir áheyrnina!