21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í D-deild Alþingistíðinda. (1420)

14. mál, dýrtíðaruppbót

Einar Arnórsson:

Ég get vel skilið, að till. slík sem þessi væri borin fram í vetur af þáv. fjmrh., því að þá hefir hann ekki vitað, að flokksmenn hans vildu breyta till. í það horf, sem meiri hl. fjhn. vill nú gera. En ég get síður skilið það, að eftirmaður hans, núv. hæstv. forsrh., kemur með till. í nafni stj. nú í sumar, sem er alveg eins og sú till., sem fyrirrennari hans bar fram í vetur, því að ég geri ráð fyrir, að hæstv. forsrh. og fyrrv. fjmrh. hafi verið kunnugt um hug flokksmanna sinna í þessu máli. Ég geri ráð fyrir, að hann standi nú einn uppi með þessa till. sína, þegar hann greiðir atkv. á móti fjhn., svipað og fyrirrennari hans gerði síðastl. vetur.

Þá vil ég leyfa mér að gera ofurlitla fyrirspurn. Nú liggja fyrir fjárlög fyrir yfirstandandi ár, og nú hefir verið samþ. fjárlagafrv. fyrir komandi ár. Nú vil ég spyrjast fyrir um það, hvort launagreiðslur embættis- og starfsmanna ríkisins í fjárlögum fyrir árið 1931 og fjárlagafrv. 1932 séu reiknuð með 40%. dýrtíðaruppbót. Ég hygg svo vera, en fullyrði ekki um það nema á einstaka liði, þar sem 40% dýrtíðarupphót er sérstaklega reiknuð. En ef þannig er ákveðið í fjárl., þá sé ég ekki, að hægt sé að taka af stj. heimild til að greiða þessa uppbót, en ef þetta hugboð mitt er rangt, þá nær það ekki lengra, en ég hefi svo skilið, að tölur fjárlaganna væru ákveðnar með þessari prósenttölu.

Ég skal 1ýsa því yfir, að ég álít till. hv. 2. þm. Rang. mjög sanngjarna, ef hennar verður þörf, þ. e. a. s. ef það verður samþ. að greiða öllum embættis- og starfsmönnum ríkisins 40% dýrtíðaruppbót aðeins til septemberloka. Þó að allur þorri opinberra starfsmanna sé mjög lágt launaður, þá væri það þó tilfinnanlegast fyrir þá, sem eru allra lægst launaðir, ef það á að lækka enn laun þeirra.

Annars er það mikið misrétti, sem nú á sér stað um laun starfsmanna og sýslunarmanna ríkisins. Þeir, sem eru undir launakjörunum frá 1919, bera oft skarðan hlut frá borði. Allt öðru máli er að gegna með ýmsar þær sýslur, sem síðar hefir verið stofnað til, t. d. fræðslumálastjóraembættið, en þar fyrir segi ég alls ekki, að laun fræðslumálastjóra séu of mikil. Sama er að segja um útvarpsstjórann. Hann hefir miklu hærri laun en þeir, sem í gömlum embættum eru. Ég geri ráð fyrir, að laun þessara manna séu ekki of há miðað við verðlag og lífsþarfir, en hér er um mikið misrétti að ræða borið saman við þá, sem búa við gömlu launalögin, og þó eru auðvitað margir þeirra búnir að vera miklu lengur í embætti en þessir menn, sem ég gat um. Ég tala nú ekki um launakjör bankastjóra og þesskonar manna, sem hafa fyrst og fremst það hlutverk að segja nei við öllum lánsbeiðnum. Þeir hafa þrefalt hærri laun en þeir, sem eru taldir hafa allgóð laun á mæli þeirra, sem sjá ofsjónum yfir öllu slíku.

Ég verð að segja það, að ef þessir embættismenn, sem hafa upp og ofan laun frá 2000 kr. og upp í 6000 kr., eiga að taka þátt í kreppunni, þá eiga bankastjórar og þesskonar hálaunamenn að taka þátt í henni líka. Þessi fjárhæð, sem hér er um að ræða, er fyrir ýmsa að vísu heldur lítil. Það eru víst 450 kr., sem það dregur marga embættismenn, hvort það er 30 eða 40%, af þeim hluta launa, sem dýrtíðaruppbótin er reiknuð af. En þar sem launakjör þessara manna eru yfirleitt svo frámunalega bágborin, þá mun það þó koma flestum verr en eigi, að af þeim verði dregin þessi 10% af uppbót þeirri, sem þeir hafa notið nú nokkur ár.