21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í D-deild Alþingistíðinda. (1426)
14. mál, dýrtíðaruppbót
Magnús Jónsson:
Það er dálítið leiðinlegt fyrir okkur starfsmenn ríkisins að tala mikið um þessa till., sérstaklega til andmæla, því að þá mætti líta svo á, að við berum þar okkar eiginn hag fyrir brjósti.
Eitt er það, sem ég vil benda á í þessu sambandi, og það er það, að verði þessi till. samþ. og dýrtíðaruppbótin þar af leiðandi lækkuð, þá er það líklega eina lækkunin, sem farið er fram á í launagreiðslum fastra starfsmanna. Það eru flestir aðrir en ríkið og kannske bæjarfélagið, sem hafa tekið upp svipaða reglu um fastákveðna krónuupphæð, og mér er ekki kunnugt um, að fyrir liggi kvartanir hjá þeim. Það er nauðsynlegt að fá einnig fastan grundvöll fyrir launakjör starfsmanna ríkisins, vegna þess, hvað dýrtíðin er breytileg.
Það hefir enn sem komið er engin stj. séð þess kost að ráða launamálinu til lykta, en það er eingöngu formið á launalögunum, sem lætur mönnum koma til hugar að lækka launin.
Það er fallega talað, að starfsmenn ríkisins eigi að taka þátt í þessum erfiðu tímum eins og aðrir. En ég vil benda á það, að þessir menn hafa ekki tekið þátt í góðærinu; þeir fá sín laun klippt og skorin, þó að allt leiki í lyndi fyrir öðrum. Það hefir aldrei borið á því hér á þingi, að starfsmenn ríkisins ættu að njóta góðs að veltiárunum. En þegar harðnar í ári, þá er talað um, að þessir menn, sem settir voru hjá á góðu árunum, taki þátt í því erfiða árferði. Allt þetta tal þessara manna er til þess, að kjósendur þeirra fái einhvern þakklætissting í hjarta sínu, þegar þm. þeirra hefir sýnt svona mikinn sparnaðarhug. Þetta er kjósendadekur og ekkert annað, svo að maður klæði nú þetta úr öllu rósamáli.
Það er alkunnugt, að dýrtíðaruppbótin er bundin svo miklum takmörkunum, að þeir, sem kallaðir eru stórlaunamenn, eru sviptir miklum hluta af dýrtíðaruppbótinni, ef launin fara fram úr 4500 kr., og laun og dýrtíðaruppbót mega ekki fara fram úr 9000 kr. Og í viðbót við þessar takmarkanir á nú þessi lækkun að koma. En það er ekki farið fram á, að aðrir starfsmenn ríkisins, sem enga dýrtíðaruppbót hafa, fái lægri laun nú en endranær. Það á aðeins að lækka við þá, sem fá dýrtíðaruppbót, en það á engan grundvöll að leggja fyrir almenna lækkun á peningaborgunum til manna.
Út af brtt. hv. 2. þm. Rang. vil ég segja það, að mér virðist hún sanngjörn, en það er hún vegna þess, að launalögin eru ósanngjörn. Þeir fara auðvitað verst út úr þessu, sem eru allra lægst launaðir. Svo framarlega sem dýrtíðaruppbótin er skoðuð sem uppbót fyrir það, að peningarnir gilda ekki eins mikið og þeir eiga að gilda, þá eru þeir, sem hafa yfir 4500 kr. laun, sviptir nokkru af launum þeim, sem þeim eru ákveðin í launalögunum, en þeir, sem fá 4500 kr. eða minna, þeir fá sín laun.
Annars er það öllum hv. þdm. kunnugt, að þótt dýrtíðaruppbót hagstofunnar lækki, þá er það ekki af því, að hin raunverulega dýrtíð lækki. Það kemur meðfram til af því, að dýrtíðaruppbótin er reiknuð eftir of fáum verðstuðlum, þannig, að hún er skökk. T. d. húsaleigan, sem kvartað er undan bæði í Reykjavík og annarsstaðar, hefir hækkað stórkostlega, og er ekki tekið nærri því nóg tillit til þess við útreikning vísitölunnar, þó að margir launamenn verði að greiða ¼ af launum sínum fyrir húsaleigu. Sömuleiðis er miðað við markaðsverð á 2. fl. saltfiski, og er því ekkert að marka þann verðstuðul. En svo hefir hagstofan líka reiknað út aðra vísitölu, hina svonefndu búvísitölu, og það er sú rétta vísitala, sem sýnir, hvað kostar að lifa, og hún er miklu hærri en sú vísitala, sem dýrtíðaruppbótin er reiknuð eftir.
Ég skal ekki blanda mér inn í þá lagalegu hlið þessa máls, hvort það liggi nú þegar fyrir heimild um það, að greiða launin með 40% dýrtíðaruppbót, en mér virðist það augljóst, að með samþykkt fjárl. liggur fyrir heimild um þetta.