22.08.1931
Sameinað þing: 6. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í D-deild Alþingistíðinda. (1441)

14. mál, dýrtíðaruppbót

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hv. 1. landsk. segir, að ef stj. sé bundin við ákvæði launal., þá verði því ekki breytt með þál. Þetta er rétt. En þó getur ný heimild komið til greina um viðbótargreiðslu, eins og í þál. felst. Ef það væri tilætlunin að lækka dýrtíðaruppbótina frá því, sem var í gildandi launaleigum, þá væri þessi aths. á rökum byggð, en þar sem um hækkun er að ræða, eða m. ö. o. viðbótarheimild, á aths. ekki við. Annars er það vel boðið af hv. þm. að ætla ekki að áfellast stj., þótt hún greiði til áramóta sömu uppbót og gert hefir verið það sem af er þessu ári.

Ég hefi þegar lýst yfir því, að ég tel þennan skilning ótvíræðan. Liggur það í hlutarins eðli, að ef talað er um verðstuðulsuppbót, þá hlýtur einhver verðstuðull að vera til, en hann er hvergi annarsstaðar að finna en í ákvæðum launalaganna um dýrtíðaruppbót.