22.08.1931
Sameinað þing: 6. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 171 í D-deild Alþingistíðinda. (1445)

14. mál, dýrtíðaruppbót

Jón Auðunn Jónsson:

Ég sé ekki, hvernig hæstv. fjmrh. ætlar að láta sér skilaboð frá flm. einhverrar till. nægja um skilning þann, er leggja beri í hana. Þeir, sem fylgt hafa till., hafa e. t. v. lagt annan skilning í hana. Annars virðist mér till. heldur lítils virði. Verði hún ekki samþ., þá útilokar það samt ekki, að stj. greiði áfram þennan uppbótarauka.

Ég held ekki, að skilningur hæstv. fjmrh. geti staðizt um þá menn, sem hafa ákveðin laun í fjárl. Hér stendur t. d.: Til Bjarna Sæmundssonar, föst laun með dýrtíðaruppbót, 6800 kr. — Hér stendur ekkert um það, hver dýrtíðaruppbótin er, en honum eru áætluð þessi laun með dýrtíðaruppbót, hvort sem hún er 40%, 50% eða 10%. Nái till. samþykki, þá hefir stj. ekki leyfi til að borga þeim mönnum fulla dýrtíðaruppbót, sem hafa meiri árslaun en 2500 kr.