22.08.1931
Sameinað þing: 6. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í D-deild Alþingistíðinda. (1448)

14. mál, dýrtíðaruppbót

Fjmrh. (Ásgeir Ásgeirsson):

Hv. þm. N.-Ísf. hefir látið þess getið, að það eigi ekki að nægja fyrir stjórnina að fara eftir yfirlýstum skilningi flutningsmanna eða annara þm. (JAJ: Eftir á, eftir að búið er að samþ. till.). Já, eftir að búið er að samþ. till. En það var einmitt vegna þessa, að búið var að samþ. till., sem ég hafði þann varnagla, að ég mundi leggja þennan skilning í brtt., nema því væri mótmælt af þeim, sem greiddu till. atkv. Og ef einhver vill hafa sig til að mótmæla þeim skilningi, einhverjir af þeim, sem hafa fylgt þessari viðbót, þá finn ég mér skylt að taka tillit til mótmælanna. En ef engin slík mótmæli koma hér fram, þá tel ég vitalaust að hafa þann skilning, sem flm. mun hafa lagt í þetta ákvæði. En það er mér ljóst, að þetta er nokkuð hæpið, og því vil ég vara menn við, þá sem kynnu að vilja mótmæla slíkri framkvæmd á till.

Um laun dr. Bjarna Sæmundssonar og Einars Jónssonar virðist mér ótvírætt, að þeir komi undir þessa till. eins og aðrir, sem nefndir eru í sambandi við þessa verðstuðulsuppbót. Og það er auðreiknað, hvað hún er áætluð, 40% af upphæðinni, þótt ekki sé sundurliðað í fjárlögum. Ég mun því svara fyrirspurn hv. 4. þm. Reykv. þannig, að framkvæmd á till. nái til þessara tveggja manna, nema mér verði sýnt fram á með skýrum rökum, að líkur verði til, að stj. mundi tapa máli, ef þeir sæktu rétt sinn fyrir dómstólunum.

Hv. 1. þm. Reykv. hafði ekki margt að athuga um það, sem ég sagði um „clausulu“ 18. gr. um dýrtíðaruppbót eftir reglu launalaganna, annað en það, að ef maður leggur áherzlu á þessa „clausulu“, þá hefði stj. undanfarið verið heimildarlaus um að láta 40% uppbót ná til þessarar greinar. Það er að vísu rétt, að stj. mun ekki hafa haft heimild eða formlega fyrirskipun frá þinginu. En þetta hefir jafnan verið látið óátalið, og í því er fólgið sakleysi fyrrv. stj. í þessu efni.

Það er vitanlegt, að ef þessi till. verður samþ., þá er hún síðasti þingvilji, sem verður að fara eftir á þann hátt, sem ekki kemur í bága við gildandi launalög og reglu um útreikning dýrtíðaruppbótar.