07.08.1931
Efri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1040 í B-deild Alþingistíðinda. (1458)
18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum
Jón Baldvinsson:
Hv. frsm. meiri hl. n. hefir nú skýrt frá, að n. hafi ekki enn tekið til yfirvegunar frv. um rafveitulánasjóð, sem ég bar fram og vísað var til fjhn. Skildist mér í orðum hans felast, að tóbakseinkasalan ætti að ganga á undan því máli, til þess að hægt væri að koma því í framkvæmd. Þóttist ég kenna velvildar til málsins í þeim ummælum. Vil ég því vænta, að hv. form. n. láti málið koma fljótlega fram. Ég hefi reynt hv. 2. þm. S.-M. að því að vera orðvaran og gætinn mann og áreiðanlegan, er segði ekki meira en hann ætlaði að standa við. En mér skildist hann vilja hraða afgr. málsins eftir því sem n. kemst til.
Hv. 1. þm. Reykv. bjóst við, að n. mundi ekki taka mínar till. til greina um það, hvernig ætti að verja þessu fé. En í hans augum er hér ekki um að ræða neinar tekjur í ríkissjóð. Hann spáir, að tekjur í ríkissjóð muni minnka frá því, sem nú er, a. m. k. ekki aukast, svo að í hans augum má það vera sama, hvort þetta verður samþ. til þess að fá stj. peninga. Hitt er það, að bæði hann og ég verðum að horfast í augu við það, að Framsóknarflokkurinn hefir meiri hl. á þingi og skipar nú stj.; en það hindrar okkur ekki í því að bera fram ýmsar till., jafnvel þótt okkur sé ljóst af undangenginni reynslu, að stj. Framsóknarfl. skirrist ekki við að ganga í berhögg við það, sem þingið setur, — og það svo mjög, að menn líta svo á, að hún jafnvel gangi á svig við sjálf ákvæði stjórnarskrárinnar. Samt komum við með till. til þess að tryggja rétt þingsins. Og m. a. talaði hv. 1. landsk. í fyrradag, þegar rætt var um verðtollinn, um það að setja einskonar „haft“ á stj. í fjárl., með till., sem flokksmenn hans fluttu í Nd. Við jafnaðarmenn viljum líka setja haft á hæstv. stj. með sérstakri löggjöf. Það haft ætti að vera sterkara en haftið í fjárl., því að sýnt er það, að hæstv. stj. „respekterar“ ekki fjárl. frekar en henni gott þykir.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að tala frekar um þetta. Hv. frsm. hefir lýst fylgi sínu við málið og talað vinsamlega um það.