19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (1505)
18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum
Forseti (JörB) [óyfirl.]:
Hv. 2. þm. Skagf. veik að því, hvort unnt mundi að taka mál til umr., sem vísað hefir verið til nefndar, og n. hefir ekki birt álit um, að annan hátt en með því að leita afbrigða. Í 18. gr. þingskapanna er svo fyrir mælt, að eigi megi mál af nýju til umr. taka fyrr en a. m. k. tveim nóttum síðar en nál. er útbýtt. En hvorki í þessari gr. né annarsstaðar í þingsköpunum eru nein fyrirmæli um það, að eigi megi taka mál fyrir í þinginu, þó að n. hafi ekki látið uppi álit sitt um það. Í öðrum ákvæðum þingskapanna, þar sem svo er fyrir mælt, að bæði forseti og deildin geti tekið mál á dagskrá og út af dagskrá, er ekkert að þessu vikið. Get ég því ekki séð, að þetta brjóti í bág við ákvæði þingskapanna. Það hefir oft komið fyrir, að mál hefir verið tekið til meðferðar í þinginu, sem ekki hefir verið vísað til n., og hefir þá aldrei verið leitað afbrigða, og verður því ekki annað séð en að það sé í samræmi við þingsköp og þingvenjur, að þetta mál er tekið hér fyrir.