19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (1506)
18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum
Jóhann Jósefsson:
Að því er snertir álit hæstv. forseta, þá virðist mér, að ef með þessu ætti að gefa fordæmi fyrir framtíðina, þá mætti fara svo, ef forseti væri þar með í verki, að mál, sem ættu svo lítið undir sér, að þeim stæði hætta af neitun afbrigða, mættu komast til umr. fyrir eðlilegan tíma með þeim hætti, að forseti tæki þau af dagskrá áður en n. gæti látið í ljós álit sitt á þeim. Er það auðsætt hverjum manni, hvað af slíkri venju gæti leitt.