19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1105 í B-deild Alþingistíðinda. (1507)
18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum
Jón Auðunn Jónsson [óyfirl.]:
Ég get ekki betur séð en að ef slíkum úrskurði sem þessum væri beitt að jafnaði, þá geti forseti alltaf komið í veg fyrir það, að n. fái tækifæri til þess að skila áliti um málin. Sé þeirri reglu beitt, þá gæti ég hugsað, að hún myndi frekar leiða til þess að tefja þingstörfin heldur en að flýta þeim. Í öðru lagt myndu þm. síður stilla kröfum sínum í hóf, ef forseti sýndi slíka óbilgirni.
Ég veit með vissu, að það er ekki tilgangur þingskapanna að útiloka þm. frá því að vinna í n., þar sem það eru aðalstörf þingsins. En þessi aðferð miðar að því að meina þm. að vinna í n. og er því í andstöðu við þingsköpin.
Ég er ekki að segja með þessu, að núv. hæstv. forseti myndi nota vald sitt á þennan hátt, en þeir forsetar hafa verið hér áður og geta orðið í framtíðinni, sem trúandi væri til að gera það.