19.08.1931
Neðri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í B-deild Alþingistíðinda. (1511)

18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum

Einar Arnórsson:

Ég ætla fyrst að tala um þingsköpin, þó að mikið sé búið að ræða um þau áður.

Tilgangurinn með því að vísa málum til nefnda er vitanlega sá, að n. taki þau til athugunar, og gefi út um þau nál., ef henni þykir það þess vert. Og tilætlun þingskapanna er sú, að málin séu ekki tekin á dagskrá fyrr en n. hefir látið uppi álit sitt um þau, ef henni þykir það þess vert.

Ég skal taka það fram strax, að hugsanlegt er, að n. vanrækti starf sitt vísvitandi. Er þá eðlilegast, að viðkomandi deild fái forseta sinn til þess að reka á eftir, svo að málin megi koma á dagskrá. (IngB: Stendur þetta í þingsköpunum?). Nei, ég sagði aðeins, að þetta væri eðlilegasta leiðin.

Nú er það öllum auðsætt, að hv. fjhn. hefir ekki brugðizt skyldu sinni á neinn hátt. Það er ómögulegt að segja það, að hún hafi vanrækt að gefa út nál. eða staðið illa í starfi sínu á annan hátt. Það er skýrt tekið fram í þingsköpum, að bæði meiri og minni hl. n. eigi rétt á að láta í ljós álit sitt á málunum, og bæði meiri og minni hl. d. hafi rétt til þess að athuga þau, þar sem það er ákveðið, að mál megi ekki taka til umr. af nýju fyrr en a. m. k. tveim nóttum síðar en nál. var útbýtt. En hér er farið í bága við þingsköpin á tvennan hátt. — Fyrst með því, að n. hefir ekki gefizt kostur á að gefa út nál. og því þess vegna ekki útbýtt tveim nóttum fyrr en málið er tekið til meðferðar, eins og þingsköp ákveða. Er því langeðlilegast, að leitað sé afbrigða frá þingsköpum um það, hvort málið skuli tekið til meðferðar á þessum fundi. En forseti telur eigi ástæðu til þessa. Og er því einnig að þessu leyti farið í bága við þingsköp. Það er því bæði brotinn réttur á nefndinni og á deildinni.

Það ákvæði, að ekki megi veita afbrigði án samþykkis stj. og 3/4 dm., er vitanlega sett til þess að tryggja rétt minni hl. Annars væri hægt að hlunnfara nefndarmenn og taka mál til meðferðar gegn vilja þess minni hl. deildar, er synja má afbrigða frá þingsköpum.

Hitt er annað mál, að forsetaúrskurður er í gildi, hæstaréttardómur á sínu sviði, og því óhagganlegur. En þrátt fyrir þetta er heimilt að gagnrýna hæstaréttardóma og forsetaúrskurði, ef það er gert á þinglegan hátt.

Um mál það, sem hér liggur fyrir, mætti margt segja. Ég stend að vígi nokkuð öðruvísi en margir aðrir hv. þdm. Því að ég er svo heppinn að hafa aldrei tekið þátt í setningu eða afnámi laga um tóbakseinkasölu. Ég hefi alltaf verið á móti þessari ríkiseinkasölu, eins og flestum öðrum einkasölum, hver svo sem fram hefir hana borið.

Um þá meginstefnu, hvort ríkið eigi að reka verzlun eða ekki, mætti margt segja. Frá sjónarmiði jafnaðarmanna hefir það ýmsa kosti, en frá sjónarmiði okkar sjálfstæðismanna hefir ríkiseinkasala svo yfirgnæfandi ókosti, að við viljum ekki sæta henni. Í ríkisrekstri koma margir vankantar í ljós, sem ekki koma fram í atvinnurekstri einstaklinga. Þegar ríkinu er veitt vald til þess að reka atvinnu, þ. á m. verzlun, þá eru því um leið veittir möguleikar til að mynda nokkurskonar hreiður í kringum sig til þess að hafa vildarvini sína í. Og þó að stjórnin sé af bezta vilja gerð, þá veitist henni erfitt að synda fyrir þetta sker. Það hefir brunnið við, að komið hefir fram misbrúkun í þessa átt og er það ekki nema mannlegt. Stjórnirnar eru veikar fyrir og þær eiga vildarmenn og áhangendur, sem þær þurfa að koma fyrir í hentugu hreiðri. Það er því hætt við, að mannahald verði þar dýrara og óhentugra en hjá einstökum mönnum. Það er nú einu sinni svo, að menn sjá betur um sinn hag, þegar það kemur beinlínis við þeirra pyngju. En það er sjaldan hægt að sanna, að ólagið sé stjórninni að kenna, og þó svo kunni að vera, þá eru þingin miskunnarsöm, eða meiri hl. þeirra, og láta ekki stjórnirnar sæta ábyrgð fyrir það, sem þær kunna að láta ógert eða ofgert. Þessar aths. ná yfirleitt til ríkisrekstrar, hverju nafni sem hann nefnist. Þar af leiðir ekki, að það sé ekkert fyrirtæki til, sem ríkið eigi að reka. Það eru ýmsir hagsmunir, sem eru svo nátengdir ríkinu, að það er varla gerlegt, að aðrir ræki þá en ríkisvaldið. En það er erfitt að greina takmörkin. Það er t. d. alkunnugt, að ríkið rekur mikið af skólum í hverju landi og heldur þeim uppi. Það er ekki alveg gefið, að skólahald ríkisins sé að öllu leyti hagkvæm, og ekki ólíklegt, að þó einstökum mönnum yrði falið það, þá yrðu skólarnir eins vel reknir, þ. á m. eins góðir kennarar ráðnir. En það er orðið allrótgróið í vitund manna, að ríkið annist skólahald. Póstflutningur og sími hér á landi er einnig rekið af ríkinu. Nú hafa mönnum fundizt miklir gallar á þessum sviðum og það svo miklir, að þeir myndu e. t. v. heldur minnka. ef einstakir menn rækju þessar stofnanir. En ríkið getur rekið þetta og haft ágóða af, þar sem það er eitt um hituna og enginn keppir við það. Það er engin hætta á því, að ríkið tapi fé á símarekstri, þar sem það útilokar alla samkeppni.

Hér er um það að ræða, að ríkið færi út kvíarnar í atvinnurekstri sínum og taki sölu á einni vöruteg., sem ég vil kalla neyzluvöru, því að þótt tóbakið sé kallað óþarft, þá er það nauðsynjavara, eins og sást í stríðinu síðasta, þar sem ríkisstjórnir viðurkenndu þetta með því að senda hermönnum birgðir af tóbaki með birgðum af mat, og sýndu með því, að hermönnum væri þessi vöruteg. nauðsynleg eins og matur. Það er t. d. mikill munur á skoðunum manna á tóbaki og áfengi. Ég býst ekki við því, að hermönnum hafi t. d. verið sendur sami skammtur af áfengi og tóbaki. Í raun og veru er því hér að ræða um nauðsynjavörutegund.

Við höfum nú nokkra reynslu á ríkisrekstri, eða frá því um 1600 til loka 18. aldar. Konungarnir, sem voru sama sem ríkisvaldið þá, ráku eða létu reka verzlunina, og stundum var hún beinlínis seld á leigu til hagsmuna konungsvaldinu. Þess þarf nú að vísu ekki að vænta, þó að ríkið taki verzlunina, að það þurfi að vera vöruskortur, eins og oft var á einokunartímunum. Hitt er annað mál, að það er engin trygging fyrir því, að varan verði ódýrari, heldur einmitt líklegt, að hún verði dýrari en í hinni frjálsu samkeppni, og það hefir ennfremur viljað brenna við, að varan væri óvandaðri. Og þetta er vel skiljanlegt, því þar sem einn er um hituna, er ekki eins hugsað um að vanda vöruna eins og þegar margir keppa, og engin hvöt til þess að taka upp nýjungar og endurbætur, sem fram koma á vörum og verzlunarháttum. Einkasölunni er líka stjórnað, e. t. v. heilan mannsaldur af sama manni. og hann verður með aldrinum værukær og lítið hneigður fyrir að taka upp nýjungar og fylgjast með.

Einkasala, og með henni bann gegn innflutningi annara á einkasöluvörunni, hefir einnig haft aðra ókosti í för með sér. Hér var tóbakseinkasala á árunum 1922–1925, og það er alkunnugt og tjáir ekki í móti því að mæla, að tollsvik og ólöglegur innflutningur var mikill á þessum árum. Það er í almæli, að menn af skipum hafi selt í land allmikið af tóbaki, sem enginn tollur var greiddur af. Það var auðvitað selt ódýrara, þar sem enginn tollur var greiddur af því. Það er opinbert leyndarmál, að ýmsir brytar og sjómenn af fiskiskipum og öðrum skipum höfðu drjúgan skilding fyrir þessa lausasölu eins og var á 17. og 18. öld. Nú er auðvitað miklu auðveldara að komast að landi og ná skiptum vil landsmenn en þá var, og nú er ekki heldur lögð refsing við, svo að það varði eignamissi eða lífláti, ef menn fara út í skip til launkaupa, eins og siður var á 17. og 18. öld. Þetta skipulag, sem ég hugsa að verði innleitt og samþ. fyrir atbeina framsóknarmanna og jafnaðarmanna, hefir auk annars í sér fólginn þennan stórmikla galla, að það hvetur til tollsvika og smyglunar.

Þess má og geta, að það orð hefir legið á sumum mönnum, sem hafa haft miklar verzlunarsakir fyrir ríkið, að þeir hafi notað aðstöðu sína til þess að auðga sjálfa sig. Það er ekki smávegis freisting til að taka umboðslaun eða fara út og semja við verzlunarfélög um það, að viðkomandi skuli fá umboðslaun. Það er hægra sagt en gert að komast fyrir þetta. Það getur vel verið, að varan verði ekkert dýrari fyrir þetta, því viðkomandi segir bara við seljandann, að hann muni fara annað og þar fái hann vöruna ódýrari. Þetta er ekkert sérstakt fyrir tóbakseinkasöluna. Það gildir jafnt fyrir öll samskonar fyrirtæki, sem ríkið rekur. Það má auðvitað setja lög um þetta, en það er ekki jafnauðvelt að framfylgja þeim. Það stendur auðvitað ekki í bókum fyrirtækisins, þótt forstjórinn taki þóknun eða umboðslaun. Rekstrarkostnaður hins opinbera hefir löngum þótt nokkuð mikill, því þar hefir stundum verið miður til starfsmanna vandað, og oft og einatt hafðir of margir starfsmenn. Ég ætla, að síldareinkasalan sé ágætt dæmi upp á þetta. Þar er t. d. skrifstofukostnaður í Kaupmannahöfn 40. þús. kr., eftir reikningum, sem seinast hafa komið. Og skrifstofa þessi hefir svo sem ekkert gagn gert. Þetta er eitt dæmi upp á rekstrarkostnað við einkasölu. Ég skal ekki fullyrða neitt um það, að þetta verði sambærilegt við rekstrarkostnað tóbakseinkasölunnar. En það er ástæða til að benda á þetta og hafa það í huga, að það eru auðvitað neytendurnir, sem borga rekstrarkostnaðinn.

Ástæðan fyrir því, að þetta frv. er borið fram og verður væntanlega keyrt gegnum deildina með meira ofurkappi en dæmi eru til, er talin sú, að málið sé nauðsynjamál. Og sú nauðsyn á að vera fólgin í því, að það sé verið að sjá ríkissjóði fyrir auknum tekjum. Það er verið að reyna að telja mönnum trú um, að það sé verið að búa svo í haginn fyrir ríkissjóð, að þetta mál geti ekki beðið til næsta þings. Hv. 2. þm. Skagf. hefir vikið að þessu áður. En fjarri fer því að hér sé verið að afla ríkissjóði meiri tekna en hann hefir nú um stund haft af tóbaki. Eftir ákvæðum frv. missir ríkisstj. allan tollinn, því honum er ráðstafað í 14. gr. þess. Þegar fjárl. voru til umr. hér í d., sögðu fylgismenn stjórnarinnar, að það væri hætt við, að tekjuhalli yrði næsta ár, og því yrði að fara varlega í öll útgjöld. En nú eru þeir ekki hræddir við að svipta ríkissj. 1 millj. kr. og leggja í allt annað. Ég skil 14. gr. svo, að þetta sé umfram það, sem nú er ætlazt til eftir öðrum heimildum, að renni til fyrirtækja þeirra, sem í 14. gr. frv. segir. Þetta má því ekki skilja svo, að ég sé að telja féð eftir, sem á að renna til þessara stofnana. En ég vildi aðeins segja í þessu sambandi, að stuðningsmenn stj. virðast nú vera rífari á fé ríkissj. en þeir voru við meðferð fjárl. En reyndar virðist ekki svo að tóbakseinkasalan sé neinn sérstakur snúður fyrir ríkissjóð. Það kom í ljós, að tekjur ríkissjóðs af tóbakinu urðu minni á meðan einkasalan var en eftir að hún var afnumin. Tekjur ríkissjóðs af tóbakseinkasölunni voru árin 1922–1925 að meðaltali 750 þús. kr., á ári, en eftir að tóbakseinkasalan var afnumin voru þær að meðaltali 1 millj. 141 þús. kr. Árið 1927 voru tekjurnar orðnar 380 þús. kr. meiri en á meðan einkasalan var. Það er ennfremur víst, að einstakir menn, sem verzla með tóbak, bæði í heildsölu og smásölu, hafa, síðan einkasalan var afnumin, goldið ríflega upphæð í ríkissjóð sem hluta af tekjuskatti af verzlunarrekstri sínum að því er tóbakið snertir. Það er auðvitað ekki hægt að gera grein fyrir því nema með mikilli rannsókn, hve miklu þessi skattur á verzlunarstéttina hefir numið. En það hlýtur að nema mörgum tugum eða jafnvel hundruðum þús. kr. Menn komast í hærri skattstiga eftir því sem tekjurnar hækka. Af hæstu tekjum koma hæstu skattar. Þegar verið er að gylla það, að einkasalan sé svo mikill tekjuliður, þá ættu menn m. a. að taka þetta til greina. Það er ekki nóg með að tekjur ríkissjóðs verði minni með einkasölu, heldur gildir þetta auðvitað sveitarfélög. Það er enginn vafi á því, að t. d. Rvík missir allmikinn tekjustofn, ef einkasalan verður tekin upp. Um leið og tekjurnar minnka, hljóta möguleikarnir til að bera útsvör að minnka að sama skapi. Á Tóbaksverzlun Íslands eru lagðar 27000 kr. í aukaútsvar í Rvík og það eru eflaust mörg önnur verzlunarhús, sem greiða háa skatta af tóbakssölu. Það eru sjálfsagt 6–8% af útsvörum sumra firmna hér, sem kemur á tóbakssölu þeirra, svo að þetta nemur þúsundum króna.

Ég gæti hugsað, að einkasalan rýrði útsvarsgjaldgetu kaupmanna hér í Rvík um 50–60 þús. kr. árlega. Og ef haldið er áfram á þessari braut með einkasölur, þá gæti að því rekið, að sveitar- og bæjarfélögin misstu mikið af núverandi tekjustofnum sínum. Þegar þingið hefir sett þessar einkasölur, hefir lítið verið séð fyrir bótum á því tapi, sem bæjar- og sveitarfélögin hafa orðið fyrir. — Hér er t. d. ríkisprentsmiðja, sem áður var einkafyrirtæki, og bar þá stundum 8–10 þús. kr. aukaútsvar, en nú veit ég ekki, hvort hún greiðir nokkuð og alls ekki meira en 5% af nettó arði. Þannig getur löggjafarvaldið haldið lengi áfram, — svo lengi, að atvinnurekendurnir, sem nú eru aðalmjólkurkýr sveitar- og bæjarfélaganna, verða úr sögunni. Þá sé ég ekki, hvernig fer með þessi bæjarfélög, nema þau fari á ríkið, og veit ég ekki, hvort það þykir betra.

Þá ætla ég að snúa mér að frv. sjálfu. Frá l. jan. 1932 má enginn nema ríkisstj. flytja inn tóbak. Þetta stendur óbreytt eins og frá því var gengið á vetrarþinginu síðasta. En það er of skammur fyrirvari. Nú er langt liðið fram í ágúst, og það má búast við því, að margir kaupmenn eigi miklar birgðir fyrir, og þá er ekki nægilegt séð fyrir því, hvernig með þær skuli fara, því að í 6. gr. frv. er sagt það eitt, að ríkisstj. ákveði í reglugerð, hvernig fara skuli með tóbaksbirgðir, sem fyrir hendi kunna að vera í landinu 1. jan. 1932, og hvort gjald skuli greitt af þeim í ríkissjóð. Þetta er allt á huldu. Það er hugsanlegt, að stjórnin leyfi mönnum að selja áfram í samkeppni við sig a. m. k. fyrst um sinn. En svo segir ennfremur í 6. gr., að þá skuli ákveðið, hvort gjald skuli greitt af þeim vörum í ríkissjóð. Ég skil það svo, að ekki sé átt við tolla, því tollar hafa annaðhvort þegar verið greiddir eða hljóta að verða greiddir. Það er þá svo að skilja, að stj. sé veitt vald til nokkurskonar skattaálögu eða nýrrar tollaálögu. En þá er spurningin, hvort heimilt sé að gera slíkt eftir stjórnarskránni, því skatta skal á leggja aðeins með lögum eftir ákvæðum stjórnarskrárinnar. Ég veit, að þetta eru eftirlegukindur frá fyrri árum, svona fyrirmæli hafa verið í tóbakseinkasölulögunum, sem áður voru hér. En það þarf ekki að vera löglegt fyrir því. Svo stendur í 6. gr., að eftir l. okt. 1931 skuli ríkisstj. vera heimili að banna allan innflutning tóbaks, nema sérstakt leyfi hennar komi til. Ég geri ráð fyrir, að þetta sé svo að skilja, að stj. sé veittur ótakmarkaður réttur til þess að ráðstafa þessu atriði 3 síðustu mán. ársins. Ef frv. hefði orðið að lögum á vetrarþinginu, hefði fyrirvarinn orðið a. m. k. 6 mán., en nú verður hann ekki nema 3–4 mán. Þetta getur komið mörgum mönnum hagalega. Það eru til menn, bæði hér í bænum og annarsstaðar, sem verzla aðallega með þessa vöru, og sumir því nær eingöngu. Í 2. málsgr 1. gr. er talað um, að lög þessi taki ekki til skipa, sem koma í landhelgi og hafa innanborðs tóbak, ef birgðirnar eru ekki að áliti tollstjóra meiri en svo, að það sé hæfilegur forði handa skipverjum. En ef birgðirnar teljast meiri, fer um það, sem umfram er, eftir 13. gr. Eftir 13. gr. skal á umbúðum allra tóbaksteg., er einkasalan flytur inn, annara en tóbaks til sauðfjárbaðana, letra: „Tóbakseinkasala ríkisins“. Þá á m. ö. o. að letra , þá sígarettupakka, sem finnast í skipum, að þeir heyri til Tóbakseinkasölu ríkisins. Ég veit ekki, hver hefir verið meiningin með þessu. Mér skilst, að 13. gr. eigi hér illa við, því að hún á auðsjáanlega eftir hugsun löggjafans við það tóbak eitt, sem löglega er flutt inn. Líklegra er hitt, að eigi að gera það upptækt eftir 15. gr., svo að það hefði verið nær sanni að vísa til 15. gr. heldur en til 13. gr.

Í 2. gr. segir, að tóbak það, sem ríkisstj. flytur inn samkv. Í. gr., selji hún kaupfél., öðrum verzlunarfél. eða kaupmönnum, en eigi öðrum. Nú eru ýmsir aðrir menn, sem hafa tóbakssölu á hendi, þótt ekki teljist þeir til kaupfél., verzlunarfél. og kaupmanna; það eru t. d. allir, sem hafa opinberar veitingar með höndum. Eftir 2. gr. frv. mætti einkasalan ekki selja hótel- eða gistihúseigendum tóbak. Þeir yrðu að fara til smásala og fá það þar. Nú munu þessir menn hinsvegar ekki kaupa tóbak hjá smásölum, heldur beint af heildsölum.

Af því að þetta mál er rekið áfram með svo miklum hraða og mikilli frekju, gefst ekki n. né öðrum færi á að athuga það í ró og næði og lagfæra helztu smíðalýtin, sem á því eru. Það liggja þau ósköp á, að ekki má veita n. tóm til þess.

Eins og við var að búast, er í 3. gr. frv. ákveðið, að ríkissjóður leggi fram það fé, sem þarf til þess að reka þessa verzlun, og er ríkisstj. heimilað að taka það að láni. Mér hefir þó heyrzt eftir þeim sultarsöng, sem hljómað hefir í þessari d., m. a. við umr. um fjárl., að menn hyggjust ekki við þeim fjáruppgripum í ríkissjóði næstu ár, að hann hafi mikið aflögu til þess. Um hitt er líka kunnugt, að lánstraustið er ekki meira en nauðsynlegt er til annara hluta, sem síður mega bíða. En einkasöluvinirnir geta ekki neitað sér um að binda fé ríkisins í þessu fyrirtæki, í stað þess að nota það til annara þarfari hluta.

Í 11. gr. segir, að tóbakseinkasalan skuli jafnan hafa nokkurn forða af tóbaki fyrirliggjandi í Reykjavík. Væri hér um frjálsa verzlun að ræða, þyrfti náttúrlega ekki að setja slíkt skilyrði, því að einstaklingar myndu hugsa fyrir þessu sjálfir. En hér þykir nauðsyn á slíku skilyrði. Það skín út úr þessu ákvæði vantrú sjálfra flm. og fylgismanna málsins á, að þetta sé gott fyrirtæki, því að þetta lýsir engu öðru en því, að þeir eru í sjálfu sér hræddir um, að vanrækt verði að hafa nægilegan forða af nægilega góðum og margbrotnum vörum.

Annars er það harla einkennilegt um þetta mál, sem í rauninni er mesta „princip“-mál og snertir mikið fjárhag og verzlun landsins, að engum af hv. framsóknarmönnum hefir ennþá þótt hlýða að taka til máls um það. Ég veit ekki, af hverju þetta stafar, hvort það er af því, að þeir knýja málið í rauninni fram með samvizkunnar mótmælum fyrir sína gömlu og nýju vini og félagsbræður, socíalistana.

Ég get skilið, að meðan framsóknarmenn þurftu á socíalistum að halda til þess að geta haldið sér við völd í landinu, hafi þeir gert ýmislegt fyrir þá, og jafnvel sumt nauðugir. En það er torskildara nú, eftir að framsóknarmenn, a. m. k. í Nd., eru orðnir sjálfum sér nógir, að þeir skuli vera svona einstaklega leiðitamir við socíalista. Það er reyndar rétt, að stjórnarfl. stendur höllum fæti í hv. Ed. og þarf af þeirri ástæðu að koma sér vel við þann hv. landsk. þm., sem þar er úr flokki socíalista, og er mælt, að þessi tóbakseinkasala sé nokkurskonar smurningsolía, sem er borin á þennan hv. þm. og flokk hans um leið, til þess að mál stj. verði ekki teppt í Ed. En annars eru sumir svo illgjarnir að halda, að það sé ekki þetta eingöngu, sem um er að tefla, heldur sé það nokkurskonar vélræði, sem framsóknarmenn eru að brugga socíalistum. Þetta lítur dálítið einkennilega út, en þegar neðar er grafið, þá er það ekki svo óskynsamlegt. Eins og kunnugt er, hafa þessir tveir flokkar verið í samlögum um allt og elskazt mjög heitt, og af því hefir leitt, eftir því sem socíalistar segja sjálfir, að framsóknarmenn hafa vanið undan þeim marga sauði úr hópnum og undir sig. Svo segja menn, að þetta sé áframhald af þeirri viðleitni Framsóknar, og sennilegt er, að þetta sé bragð hjá Framsóknarflokknum; því að hér eftir geta þeir sagt við almenna liðsmenn socíalista: þið sjáið, að við rækjum ekki verri stefnu en foringjar ykkar, og það er því eins gott að gefa okkur atkv. ykkar. Ég gæti trúað, að þetta kæmi einhverntíma fram í kosningabaráttu hér á landi. Þetta virðist því vera mjög skynsamleg veiðibrella hjá framsóknarmönnum, og framkoma þeirra verður varla nú skiljanleg frá öðru sjónarmiði.

Ég býst nú við, að margir muni verða fleiri, sem æskja að taka til máls um þetta stórmál, og ætla ég því ekki að sinni að tefja tímann meira, en það getur verið, að tækifæri verði til þess að tala meira um málið síðar.