21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1131 í B-deild Alþingistíðinda. (1542)
18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum
Bergur Jónsson:
Ég ætla ekki að tala almennt um þetta mál, en það var eitt atr. í ræðu hv. þm. Vestm., sem mig langaði til að minnast á.
Hv. þm. var að ásaka meiri hl. fyrir að fella till. hv. Í. landsk. viðvíkjandi því, að starfsmenn slíkra verzlunarfyrirtækja, sem hér um ræðir, megi ekki taka við umboðslaunum. Ég sé ekki ástæðu til að banna þetta frekar í þessu frv. en öðrum slíkum, enda má gera ráð fyrir, að starfsmenn þeir, sem að þessu verða ráðnir, séu heiðarlegir menn, en sé annars þörf á að banna þetta sérstaklega með lögum, þá á slíkt ákvæði að vera sett almennt; annars yrði sama uppi á teningnum og ef ætti að breyta hegningarlögunum þannig, að í stað þess, að nú gilda ákvæðin almennt, t. d. um þjófnað og svik, ætti að telja upp þá, sem ekki mega gera sig seka í slíku. Hin leiðin hefir verið valin eins og í Mósesarlögum, að segja almennt, þú skalt ekki stela.
Þetta er svo einfalt atriði, að maður skyldi ætla, að ekki þyrfti að kenna hv. þm. það, en þótt honum hafi ekki verið þetta ljóst, vænti ég, að hann skilji það nú.