21.08.1931
Neðri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1131 í B-deild Alþingistíðinda. (1543)

18. mál, einkasala ríkisins á tóbaki og eldspýtum

Jóhann Jósefsson:

Hv. þm. Barð. og yfirvald hefir látið sitt lögfræðilega ljós skína og sagt, að ekki þyrfti að taka það fram, að starfsmenn slíkra fyrirtækja sem þessara mættu ekki taka við umboðslaunum, en hann verður að gá að því, að slík verzlun sem þessi felur í sér mikla freistingu í þessa átt, ef það orð má nefna í viðurvist hv. þm. Þessum mönnum er miklu hættara við að taka umboðslaun, sem oft og einatt er beint þrengt upp á þá, en sýslumönnum eða prestum. (BJ: Prestum?). Já, mér datt það í hug, sökum þess að guðsmaðurinn hér á horninu (SvbH) var eitthvað að muldra í barm sinn.

Annars verð ég að segja, að andinn í þessari ræðu hv. þm. minnti mig á þá fyrstu ræðu, er hann hélt hér og sagði, að hann hefði ekki þurft á neinni fölsun að halda við kosningarnar, sökum þess að kosning sín hefði verið svo viss.