20.07.1931
Neðri deild: 5. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (1583)
27. mál, einkasala á síld
Guðbrandur Ísberg:
Ég vildi aðeins leyfa mér að gera þá aths., að nú er um það að ræða, annaðhvort að gera eitthvað í þá átt að bjarga við síldarútveginum. eða að lofa honum að líða undir lok.
En það er þá a. m. k. augljóst, að ef hætt er að veiða síld, hljóta þeir verkamenn, sem undanfarið hafa unnið að síldarverkun, að missa atvinnu sína.