20.08.1931
Neðri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1151 í B-deild Alþingistíðinda. (1587)
27. mál, einkasala á síld
Vilmundur Jónsson:
Ég get verið n. þakklátur fyrir þær undirtektir, sem till. okkar hafa fengið, því að hún hefir svo að segja í öllum aðalatriðum tekið þær til greina. Það eina, sem á milli ber, er það, sem hv. frsm. gat um, hvort fulltrúarnir á aðalfund skuli skipaðir af sjómannafélögunum eða Alþýðusambandi Íslands.
Við værum ekki mikið á móti því, að sjómannafél. skipuðu þessa fulltrúa, ef þau annars væru til. En það er nú svo, að þau eru í raun og veru ekki til nema hér fyrir sunnan, í Reykjavík og Hafnarfirði. Á Akranesi, Stykkishólmi, Blönduósi, Sauðárkróki og víðar eru engin sjómannafél. Þar eru aðeins verkamannafélög, en sjómenn eru jafnframt í þeim.
Norðurlandi eru 2 sjómannafélög. Annað er á Siglufirði með 38 meðlimum, og hitt á Akureyri með 51 meðlim. Á Vesturlandi er aðeins 1 sjómannafélag, á Ísafirði, með 50 meðlimum.
Milli þessara sjómannafél. er ekkert samband annað en Alþýðusamband Íslands. En í því eru ekki einungis sjómenn, heldur einnig aðrir verkamenn Ég álít því, að Alþýðusamband Íslands sé bezt til þess fallið að fara hér með fulltrúavalið, því að bæði er, að hér hafa allir verkamenn nokkurra hagsmuna að gæta, og samkv. till. minni er það tryggt, að meiri hl. fulltrúanna verði úr flokki sjómanna, sem að vísu eiga mest í húfi. Ef menn vilja hafa alla fulltrúana sjómenn. hefi ég svo sem ekkert á móti því. Þó hygg ég sanngjarnt að leggja ekki bann við því, að skipa megi menn, sem jafnvel hvorki eru verkamenn né sjómenn, ef hinir réttu aðiljar treysta þeim til að mæta þar fyrir sína hönd ef til vill betur en nokkrum úr sinni stétt, sem vel getur komið fyrir.
Um leið og ég minnist á þetta, þykir mér við eiga að mótmæla því, sem kom hér fram í þessari hv. d. í gær hjá hv. þm. Vestm., er hann talaði um tóbakseinkasöluna. Hv. þm. sagði þá, að það hefði verið síldareinkasalan, sem hefði komið útvegi sjómanna fyrir kattarnef. Þetta er ekki rétt hjá hv. þm. því að vitanlegt er, að síldarútvegurinn var kominn í hið mesta öngþveiti áður en hún var stofnuð. Hún var stofnuð upp úr þessum vandræðum, og þótt ýmislegt sé hægt út á hana að setja, er ég viss um, að hún hefir þrátt fyrir allt fremur orðið til góðs. Sú hefir a. m. k. orðið reyndin á fyrir vestan. Síðan síldareinkasalan tók til starfa, hygg ég að enginn hafi tapað þar á síldarútgerð. Gróði hefir að vísu orðið lítill á henni, en þó svo, að hann hefir hjá flestum til þessa vegið nokkuð upp á móti því tapi, sem orðið hefir á öðrum fiskveiðum.
Mér þótti það dálítið undarlegt, að hv. þm. sagði, að reynslan hefði verið sú á síldveiðunum fyrir norðan í sumar, að menn hefðu haft 300–400 kr. í hlut og orðið að fæða sig af því. Og þetta átti að vera eftir tveggja mánaða vertíð. En það eru nú ekki nema 5 vikur síðan bátar Samvinnufél. Ísfirðinga byrjuðu síldveiðarnar, og ég ætla, að þeir hafi fengið 500–600 kr. hlut og frítt fæði. Enda eru kjörin þau, að hásetarnir hafa 32% af afla og fæði í ofanálag. Þessir 7 bátar hafa nú aflað um 37 þús. tn. saltsíldar, eða það, sem veiðileyfi þeirra nemur, en selt afganginn í bræðslu. Hverja tunnu saltsíldar höfum við reiknað á 7 kr. og hvert mál í bræðslu á 3–4 kr.
Hv. þm. Vestm. viðurkennir raunar, að einkasalan sé, þrátt fyrir allt, sem að henni má réttilega finna, til nokkurs gagns. Ef hann gerði það ekki, mundi hann í stað þess að berjast fyrir endurbótum á henni, vinna að því að fá hana lagða niður. En það dettur honum ekki í hug. Ég hefi líka heyrt einkasölunni mjög hallmælt á fundum fyrir vestan af mönnum úr öllum flokkum, en aldrei hefir verið borin þar fram till. um að leggja hana niður. Og það mun vera af því, að menn ætla almennt, að hún standi til bóta, og þótt þeir séu ekki ánægðir með hana, ber engu að síður að halda í þá átt, sem með henni er stefnt.
Það gleður mig, að hv. þm. Vestm. er á sama máli.
Ég er ekki vongóður um, að þetta mál nái fram að ganga, ef þingi verður slitið á laugardaginn. En dragist þingslitin lengur, er vorkunnarlaust að koma því fram.