20.08.1931
Neðri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í B-deild Alþingistíðinda. (1593)
27. mál, einkasala á síld
Jóhann Jósefsson:
Hv. þm. Ísaf. lýsti yfir því, að hann vildi ekki gera neitt sérstakt atriði í ræðu minni að ádeiluefni, því hann væri mér að mestu leyti sammála. Við hv. 3. þm. Reykv. get ég sagt það, að ég tel það ekki neina goðgá, þó ég minnist á forstjóra síldareinkasölunnar, þó að hann hafi látið af völdum, eða þau ranglætisverk, sem hann framdi á sinni stjórnartíð. Það verður ekki komizt hjá því, að þessir menn séu nefndir með nafni. Það hefir verið gert áður í mörgum tilfellum, að minnzt hefir verið á nöfn opinberra starfsmanna hér á þingi. (ÓTh: Í þessu tilfelli er það líklega af því, að hann er viðstaddur, að hv. 3. þm. Reykv. tekur svona sárt til hans). Það er verið að ræða um starf manns í opinberri stöðu, en ekki einkalíf hans. Ég sé því ekkert athugavert við það, þó ég nefni nafn Einars Olgeirssonar í þessu sambandi, því að það er sannað, að hann hefir misbeitt mjög stöðu sinni sem forstjóri einkasölunnar. Hann notaði áhöld félagsins, lystisnekkju, til þess að flytja ofbeldis- og öfgamenn til að koma á verkfalli í Krossanesi. Þetta er eina ferðin, sem þessi lystisnekkkja hefir verið notuð til, þegar Einar flutti lið að Krossanesi til að koma verkfallinu af stað. Þessi farkostur hafði kostað einkasöluna 10 þús. kr. Í skýrslu einkasölunnar frá síðasta ári átelur annar forstjórinn, Pétur Ólafsson, hve Einar hafi misbeitt stöðu sinni til að koma á stórfelldri kauphækkun við söltunina þvert ofan í gildandi taxta.
Þá eru áritanirnar á ávísanir Ingvars Guðjónssonar og fleiri slíkra, sem Einar hefir gert í heimildarleysi, og margt er fleira, sem of langt yrði upp að telja, er sannar, hvert böl hefir verið að setja þennan mann til forustu við síldarverzlunina.
Þeir, sem ábyrgð bera á afleiðingum verka Einars Olgeirssonar við einkasöluna, verða að sætta sig við, þó á hann og afrek hans sé minnzt hér við þetta tækifæri.
Hitt fór hv. 3. þm. Reykv. ekki út i, að reyna að verja verk þessa fyrrv. forstjóra, og þó geri ég alls ekki ráð fyrir, að hann sé þeim samþykkur. Ég skal svo ekki tefja tímann öllu meira um þetta; hv. frsm. er ekki kominn í deildina. En hv. þm. Ísaf. minntist á það, að einkasalan ætti að vera samvinnufyrirtæki. Við sjálfstæðismenn höfum jafnan barizt fyrir því, að síldareinkasalan væri rekin með meiri samvinnu allra aðilja en nú er, en það var á sínum tíma fellt hér á þingi. Vonandi er, að reynslan sé búin að sýna hv. þm. fram á, að af óstjórn einkasölunnar hafa hin mestu vandræði orðið, sem enn kunna að aukast, ef ekki er tekið í taumana. Allir, sem hagsmuna hafa að gæta í þessu efni, og þjóðin í heild eiga kröfu til þess, að þingið reyni að reisa við þennan atvinnuveg, sem er nærri kominn í rústir fyrir vanhyggju og óstjórn á ýmsum sviðum.