08.08.1931
Neðri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í D-deild Alþingistíðinda. (1623)

130. mál, minning þjóðfundarins 1851

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Það hefði verið betur viðeigandi, að þessi ráðstöfun hefði verið gerð á síðasta ári. En forsetar töldu sér ekki fært án þingheimildar að gera slíka framkvæmd, sem kostnaði veldur. Till. fylgir allýtarleg grg. frá rektor menntaskólans, þar sem hann skýrir frá, að undirbúningur hafi verið hafinn um það að breyta þjóðfundarsalnum og þingsalnum í menntaskólanum, og áætlaður kostnaður eitthvað rúm 5 þús. kr. Þeir hv. þm., sem vilja kynna sér undirbúning málsins, geta séð mynd í lestrarsal Alþingis þessu viðvíkjandi. Það mun ekki orka tvímælis, að þingheimi muni þykja það vel viðeigandi að minnast hins gamla þinghalds með nokkrum hætti.

Í sambandi við alþingishátíðina á síðasta ári var ýmislegt gert til minningar um sögu Alþingis, og mætti það gjarnan rætast, að þessum sal væri sýndur sómi, þar sem Alþingi var háð í meira en einn þriðjung aldar, og flest atriði úr stjórnmálasögu Jóns Sigurðssonar eru tengd við þennan sal.

Ef ekki gefst sérstakt tilefni til, þá mun ég ekki mæla frekar fyrir till., enda er grg. sú, sem henni fylgir, tæmandi.