17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í D-deild Alþingistíðinda. (1648)
28. mál, vegamál
Héðinn Valdimarsson:
Ég var því miður ekki við, þegar till. kom til 1. umr. og var vísað til samgmn., og gat ég því ekki mælt fyrir henni, enda hugsaði ég, að hún myndi hljóðalaust fara í gegn, þar sem hún lá fyrir síðasta þingi.
Það vill svo illa til, að á þessu þingi er samgmn. skipuð þeim þm., sem eru frá héruðum, sem minnst hafa af vegum að segja, hv. 1. þm. S.-M., sem ekki þekkir neina vegi og ber ekki skyn á annað en það, hvernig haga eigi siglingum um Mjóafjörð, hv. þm. N.-Ísf., sem ekki þekkir annan akveg í sínu kjördæmi en frá Ísafirði til Hnífsdals, hv. þm. Barð., sem ekki þekkir nokkra kerruvegi í sínu kjördæmi, hv. þm. Vestm., sem alls ekki þekkir neina vegi. Þá er eftir 2. þm. Rang., sem hefði átt að hafa áhuga á þessu máli, en það lítur út fyrir, að hann hafi ekki athugað það nægilega. Þegar hv. frsm. kemur með annað eins og það, að sumt af þessu sé ýmist framkvæmt eða miður þarft, þá er það ekki annað en helber vitleysa. Það, sem hann vill aðallega benda á, að sé miður þarft, er það, að brýr yfir ræsi verði gerðar jafnbreiðar vegum. Hv. þm. hefir látið sér sæma að koma með blekkingar í nál. og lætur svo sem um sé að ræða brýr yfirleitt, en hér er átt við brýr yfir ræsi. Það er ekki svo sjaldan, sem bílslys hljótast af því, að bílstjórar taka ekki eftir neinum geilum, sem eru á vegunum, og slengjast svo út af. Þetta er hlutur, sem kostar afarlítið að lagfæra. Annað vil ég minna á, sem ekki er komið í framkvæmd, en sem hv. frsm. þykir óþarfi, að sett séu viðvörunar- og hættumerki alstaðar meðfram akvegum, þar sem slysahætta er fyrir bifreiðaakstur, í hæfilegri fjarlægð frá kröppum beygjum, bröttum brekkum, brúm, hliðum, vegamótum eða vegarkóflum, sem eru í aðgerð. Þetta hefir vegamálastjóri hvað eftir annað lofað að gera, og síðast í vetur, þegar samskonar till. lágu fyrir, lofaði hann, að þetta skyldi gert í sumar, en hingað til hefir hann alltaf vikið sér undan þessum nauðsynlegu hlutum. Menn, sem hafa komið til útlanda, sjá, að spjöld eru alstaðar sett meðfram vegum, og þau eru nauðsynleg, því það eru ekki allir, sem fara þarna um daglega. Eins er það hér, þegar menn aka úr einu héraði í annað, þá eru menn ekki alltaf kunnugir. En fyrir utan viðvörunar- og hættumerkin þarf að hafa leiðarvísa á vegum, svo að menn rati þangað, sem þeir ætla að fara á bílunum, því menn hafa ekki alltaf tíma til að fara heim á næsta bæ til að spyrja til vegar. Þetta er það, sem hv. frsm. — og n. étur upp eftir honum –segir, að sé með öllu óþarft. Þá er það, að steinstöplar séu settir þar, sem hátt er niður af vegunum. Þeir eru mjög nauðsynlegir. Það fer máske oft svo, að bílar, sem rekast á þessa steinstöpla, aflagist eitthvað, en venjulega verður það til þess, að bílarnir fara ekki út af veginum. Hér hafa orðið ekki svo fá bílslys af því að bílar hafa farið út af, þar sem hátt er niður af veginum, en þau hafa síður komið fyrir þar, sem steinstöplar hafa verið.
Mér er alveg óskiljanlegt, hvernig n. dettur í hug að leggja á móti öðrum eins till. og þessum, þar sem þær eru bráðnauðsynlegar og kosta lítið fé. Þá er það eitt atriði, sem hv. frsm. minntist á, og það eru eftirlitsmennirnir, sem hann segir, að séu þegar komnir. Það getur verið, að það séu einhversstaðar komnir eftirlitsmenn, en ég ber algerlega brigður á, að það sé víða. Það er ekki sízt sparnaðaratriði fyrir ríkissjóð, að aðgerðir á vegum séu jafnari en nú er, því aðgerðir verða oft og einatt miklu meiri og kostnaðarsamari sökum þess, hve seint er byrjað á þeim.
Í 5. lið till. er ákvæði um það, að bifreiðaeftirlitsmönnum ríkisins skuli skylt að senda vegamálastjóra tilkynningu um nauðsynlegar viðgerðir á vegum. En það er meira í þessu; það er lögð áherzla á, að vegamálastjóri láti fara fram viðgerðir jafnóðum og nauðsyn ber til.
Þá er það, að akvegir verði ekki gerðir mjórri en 4 m.; mætti að vísu orða það þannig: — á stöðum, þar sem ekki er hægt að komast út af veginum. Það er skoðun mín og margra annara, að þessir mjóu vegir verði afskaplega dýrir. Við sjáum, að á þessum mjóu vegum, sem lagðir hafa verið hér í grennd við Rvík, geta bílar alls ekki mætzt. Eftir nokkur ár verður að byggja skot út úr vegunum með stuttum millibilum, og það hefir mikinn aukinn kostnað í för með sér. Það er vafamál, hvort vegirnir verða ekki miklu dýrari með þessum útskotum heldur en þó þeir hefðu verið byggðir í fyrstu svo breiðir, að bilar hefðu getað mætzt á þeim.
Yfirleitt sýnir afgreiðsla málsins það greinilega, hversu frsm. — því ég geri ráð fyrir, að hann hafi samið nál. — er fáfróður um þessa hluti og hversu lítið far hann hefir gert sér um að kynnast þeim. Ég veit ekki, hvernig fer um þessa till., en ég vona, að ekki séu allir hv. dm., sem bera eins lítið skynbragð á þetta eins og hv. frsm.