17.08.1931
Neðri deild: 31. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í D-deild Alþingistíðinda. (1652)
28. mál, vegamál
Einar Arnórsson:
Ég held, að það sé búið að segja svo margt gott um þessa till., að ég hafi fáu við að bæta. Ég sé ekki annað en að hvert einasta atriði í till. eigi fullan rétt á sér.
Viðvíkjandi fyrsta liðnum hefði ég helzt við hann að athuga, að 4 metra breidd á vegunum er jafnvel ekki nægileg með þeirri bifreiðabreidd, sem farin er að tíðkast. Nú er farið að nota bifreiðar, sem eru 186 cm. á breidd, og ef tvær slíkar bifreiðar eiga vel að geta mætzt, er vegurinn heldur mjór 4 metrar, því að vegarkantarnir eru oft svikulir, og því ekki óhætt að fara, mjög tæpt út á þá.
Nú er það rétt hjá hv. 1. þm. S.-V., að sem flestar sveitir eigi að tengja saman með akfærum vegum, og af þeirri nauðsyn helgast það, að meiri áherzla er lögð á að gera langan veg en góðan. En ef menn treysta sér ekki til þess að gera svo breiða vegi, að hægt sé að mætast hvar sem er á þeim á bifreiðum, þá ætti að gera þá svo úr garði, að á vissu millibili, t. d. 100–150 metra færi, væru útskot, þar sem hægt væri að mætast. En því miður eru margir hinna nýrri vega svo gerðir, að þetta hefir algerlega verið vanrækt. Dæmi þess er Þingvallavegurinn nýi. Ég held, að fyrst í vor hafi verið farið að byggja þessi útskot á veginum. En í fyrra sumar voru mestu vandræði fyrir bíla að komast þar hver framhjá öðrum.
Þá er till. um að setja steinstöpla á vegbrúnum, þar sem hátt er niður. Með þeirri till. þarf varla að mæla. Það getur verið, að rétt sé hjá hv. 1. þm. S.-M., að önnur ráð séu jafngóð til þess að varna slysum af þessum ástæðum.
Um 3. og 4. till. þarf ekki að fjölyrða. Það er mjög einkennilegt með vegalagningu hér á landi, að það er eins og kostað sé kapps um að hafa sem allra krappastar bugður við brýr, án þess að nokkur sýnileg ástæða sé alltaf til þess, og sumstaðar jafnvel ódýrara að taka ekki bugðuna. Og það er einkennilegt, að ekki skuli oftar hafa orðið slys við þessar hættulegu bugður hjá brúnum.
Um 5. liðinn er það að segja, að vegirnir sýna það sjálfir, að ekki myndi vera alveg ófyrirsynju, þó að hafðir væru eftirlitsmenn með því, hvernig vegunum væri viðhaldið á hverjum stað. Jafnvel hér á fjölförnustu þjóðvegunum eru oft kaflar, sem varla geta talizt færir á útlíðandi sumri, að maður tali ekki um á vorin.
Í öðrum löndum er það háttur að setja upp merki þar, sem krappar bugður, brekkur, ár eða brýr eða yfirleitt einhver hættuvon er. En sjálfsagt er ekki síður ástæða til þess að setja slík merki hér, því að eins og kunnugt er, aka menn hér á öllum tímum árs, öllum tímum sólarhringsins og í öllum veðrum.
Flest af þessu kostar fremur lítið, t. d. það að setja upp merki, er sýni vegalengdir til næstu staða og hvert hver vegur liggur. Mestallt í þessari till. er þannig lagað, að það þarf að gera það, og kostnaðurinn er ekki svo mikill, að fyrir þá sök eigi að látá það undir höfuð leggjast.
Mér þykir samgmn. ekki hafa meðhöndlað þessa till. jafngóðgjarnlega og maður hefði mátt búast við af henni. Hún talar um, að sumt sé miður þarft, t. d. að brýr skuli vera jafnbreiðar vegum. Þetta er dálítið villandi, því að ekki er farið fram á, að brýr á fljótum séu þannig, að bifreiðar geti mætzt þar, heldur aðeins, að brýr á ræsum séu jafnbreiðar vegunum.
Mér skilst, að hv. d. muni að sjálfsögðu samþ. till., en fella dagskrá hv. n.