18.08.1931
Neðri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í D-deild Alþingistíðinda. (1655)
28. mál, vegamál
Bergur Jónsson:
Ég sé ekki ástæðu til að elta ólar við ruddaskap hv. 3. þm. Reykv. Það voru aðalrök hans móti dagskrártill. n., að við nm. hefðum ekkert vit á vegamálum. Hann sagði, að hv. l. þm. S.-M. kynni ekkert annað en fara um Mjóafjörð. Það er mjög einkennilegt, að ungur þm. skuli gera sig svo stóran að gerast dómari yfir svo gömlum og reyndum og mætum þm. eins og hv. 1. þm. S.-M. er.
Þá sagði hv. 3. þm. Reykv., að ég mundi ekki þekkja aðra vagna en kerrur, því í Barðastrandarsýslu væru ekki aðrir vagnar til. Það er nú lítið þar um kerrur líka. En ég get nú sagt hv. þm., að ég er Reykvíkingur eins mikill og hann, fæddur hér og uppalinn engu síður en hann, og ef hann hefir aðstöðu til að þekkja vegamál þess vegna, þá ætti ég að hafa hana líka, nema þá af því, að ég væri svo miklu minni hæfileikum gæddur en hv. 3. þm. Reykv.
Svo fór hv. þm. nokkrum orðum um vegamálastjóra. Ég fyrir mitt leyti hefi nú meira álit á vegamálastjóra og hans þekkingu á vegamálum en þessa hv. þm. Hann er hagfræðingur að námi og hefir aðallega fengizt við verzlunarstörf, og þótt hann hafi sjálfsagt leyst þau vel af hendi, er ekki sérstök ástæða til að ætla, að hann þeirra vegna hafi öðlazt aðstöðu til að hafa neitt sérstakt vit á vegamálum. (MJ: Hann á bíl).
Annars get ég tekið það fram viðvíkjandi minni afstöðu til málsins, að ég álít, að þessi afgreiðsla, sem í till. er farið fram á, sé alls ekki rétt í svona málum. Hér koma fram 3 leikmenn í d., sem ætla að fara að skipa fyrir um það, hvernig eigi að fara að með vegalagningar, í stað þess að leita til þeirra manna, sem skilyrði hafa til að hafa betur vit á þessum málum.
Þó að ég hafi skrifað undir nál. fyrirvaralaust, er ég ekki allskostar ánægður með þann rökstuðning, sem þar kemur fram. Fyrir mér er það aðalatriðið, að þeir menn, sem um þetta fjalla, hafi vit á málinu og að ekki sé hrapað að neinum óskynsamlegum framkvæmdum. Með allri virðingu fyrir hv. d. lít ég svo á, að einstakir hv. þdm. hafi ekki skilyrði til að gera endanlegar till. um, hvernig heppilegast sé að ganga frá vegamálum með tilliti til sérþekkingar.
Ég vil þess vegna leyfa mér að bera fram aðra rökstudda dagskrá, og láta hana koma fram hér undir umr. Hún er á þessa leið:
Dagskrártillagan orðist svo:
Í trausti þess, að ríkisstjórnin láti athuga, hvað af umbótum þeim, sem í tillögunni er óskað eftir, megi að gagni koma, og framkvæmi það, ef það virðist eigi of kostnaðarsamt og hindrar eigi nauðsynlegar vegaaukningar, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.
Með þessu er tekið tillit til þess, sem gagnlegt og skynsamlegt er í till. þremenninganna. Hinsvegar er það tryggt, að ekkert sé gert, sem hindrar nauðsynlega lengingu á vegakerfi landsins. Og aðalatriðið fyrir flestum hv. þm. og fyrir landið er áreiðanlega það, að vegirnir verði lengdir og vegakerfið aukið sem allra mest í öllum héruðum landsins. Og ef svo á að fara að setja einstrengingslegar reglur um það, hvernig vegirnir skuli gerðir, t. d. eins og það, að þeir megi hvergi vera minna en 4 metra breiðir o. fl. þ. h., þá verður það áreiðanlega til hindrunar því, að hægt verði að lengja vegakerfið eins og þörf er á og almenningur óskar eftir, að verði gert. Ég vona því, að hv. þm. geti gengið að dagskrá minni.
Ég skal í þessu sambandi taka fram, að ég tel sum atriði í till. á þskj. 28 alls ekki fjarri sanni, og sum jafnvel sjálfsögð. En þó svo sé, þá vil ég, að það sé opin leið fyrir ríkisstj. og trúnaðarmenn hennar að taka þær til greina eftir því, sem þeim þykir rétt og skynsamlegt.