18.08.1931
Neðri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í D-deild Alþingistíðinda. (1657)
28. mál, vegamál
Héðinn Valdimarsson:
Hv. þm. Barð. varpaði nokkrum orðum að mér nýlega. Má það vera gleðiefni stj. og hinum eldri þm. Framsóknarflokksins, hvað þessi ungi þm. er lítillátur og bljúgur. Er hann reiður yfir því, að ég skuli vera að finna að gerðum eldri þm. og koma fram með till. frá sjálfum mér. Virðist hann álíta, að ekki sé um annað að gera en að vísa málunum til ríkisstj., sem völdin hefir, vitið og ráðin, og láta hana ráða. Væri það sjálfsagt ekki ónotalegt fyrir stj., ef þing væri svo samsett sem hv. þm. vill vera láta. Ég vissi það, að hv. þm. Barð. er genginn úr jafnaðarmannaflokknum, en að hann væri kominn svo í vasa steingerðustu deildar Framsóknarflokksins sem raun ber vitni um, hafði mér ekki dottið í hug.
Sýnist mér samgmn. þessi vera einkennilega samsett, því að meðlimir hennar virðast eingöngu hafa áhuga fyrir samgöngum á sjó. Þó að í héruðum þeim, sem ég veik að áðan, sé almennur áhugi fyrir sjósamgöngum, þá eru þar svo sem engar bílasamgöngur, og sést af því, að þm. þessir hafa ekki eins mikinn áhuga fyrir þeim og vera ætti. Er lítið gagn að því fyrir menn að hafa verið í Reykjavík, eins og hv. þm. Barð., ef þeir hafa aldrei hugsað um opinber mál.
Ég er ekki sá eini, sem er óánægður yfir vegamálunum í höndum vegamálastjóra, því að flestir bændur og bílstjórar og aðrir flutningamenn eru jafnóánægðir, og mun vera leit að utanþingsmönnum, sem lofa stjórn vegamálanna. Það ber að líta á fleira en kostnað, þegar um þessar breytingar er að ræða. Má líka líta á líf og limi þeirra manna, er um vegina fara, og eins á viðhald flutningatækjanna í landinu. Eru nú hátt á annað þúsund bifreiðar hér á landi, sem hver kostar ný frá 4000–13000 kr. Þær munu að jafnaði endast helmingi skemur en í öðrum löndum, þó að íslenzkir bílstjórar séu, bæði að dómi innlendra og útlendra manna, a. m. k. eins góðir og gætnir og annarsstaðar. Er orsökin sú ein, hve lélegir vegirnir eru. Þrátt fyrir tiltölulega mjög litla umferð á vegunum eru bifreiðaslys hér tíð. Eru ýmsar þessar till. þannig, að þær gera umferð alla áhættuminni. Ef þm. væru yfirleitt á móti 1. lið, að gera enga akvegi mjórri en 4 metra, þá mætti bera þann lið upp sérstaklega, eins og hv. 1. þm. Skagf. vildi. Þó að mest sé lagzt á móti þessum lið, vil ég ekki taka hann aftur. Það er ekki tiltölulega miklu dýrara, þó að vegir breikkuðu almennt um 1 meter, því að skurðir yrðu þeir sömu og ýmislegt annað yrði engu dýrara. En aftur á móti yrði allur akstur stórum öruggari og auðveldari. Og vil ég þó leggja áherzlu á, að 4 m. vegabreidd er allt of lítil þar, sem nokkur umferð er að ráði.
Viðvíkjandi 3. lið, sem fer fram á það, að brýr yfir ræsi í vegum haldi sömu breidd og vegirnir, og að svo verði um búið, að þær haldist í sömu hæð, höfum við flm. komið með skriflega brtt., sem er ekki annað en orðabreyting, til þess að komast hjá misskilningi.
Hv. þm. Borgf. talaði á móti þessum till. og gat þess sérstaklega, að önnur ráð væri hægt að hafa en steinstöpla til þess að koma í veg fyrir akstur út af vegabrúnum, þar sem hátt er niður. Held ég, að það, sem hann gat um, að setja mætti einhver bönd á vegina í þessum tilgangi, myndi ekki reynast betra en steinstöplar, og er öllu hægara fyrir bíl að fara gegnum slík trjáviðarbönd, enda hygg ég, að hv. þm. hafi þetta eftir vegamálastjóra, eins og ýmislegt annað, en hann virðist svo íhaldssamur í öllum umbótamálum veganna, að þurfi að neyða hann til að framkvæma nokkrar umbætur. — Síðasta Alþingi lofaði hættumerkjum þeim, sem um getur í 6. lið, en þau eru hvergi komin ennþá nema í Þjórsárdal, þar sem bændur hafa sjálfir gengizt fyrir þessu.
Hygg ég, að margir þm. viti, hvernig hagar til við brýr víða hér á landi, t. d. við Gljúfurá í Borgarfirði. Er bein mannhætta að aka þar um fyrir ókunnuga bílstjóra. Ef komið er á fullri ferð að brúnni, má það teljast mesta mildi, ef menn fara ekki fram af veginum og niður í ána, þar sem vegurinn liggur beint að ánni beggja vegna, og ókunnugir vegfarendur hljóta að halda, að brú sé þar yfir, en í stað þess liggur vegurinn inn með ánni frá bakkanum beggja vegna í skörpu horni, og brú yfir ána er þar innra. Eru hættumerki nauðsynleg á slíkum stöðum, og eins verður að leggja brýr þannig, að vegurinn komi ekki í krók út að brúnni, en það er yfirleitt reglan. Er hið sama að segja um margar fleiri ár en þessa. Vegamálastjóri hefir afsakað þetta með því, að það sé gert til þess að láta menn koma að brúnni á hægri ferð, en þá er ekki tekið tillit til hættunnar fyrir þá, sem í bifreiðunum eru, og gert ráð fyrir, að allir bifreiðarstjórar séu kunnugir veginum í fyrsta sinn, sem þeir aka hann.
Hv. þm. Borgf. sagði, að brýr yfir ræsi á nýjum vegum væru alltaf gerðar jafnbreiðar vegunum. Held ég, að það sé undantekning, ef brú finnst yfir ræsi, sem sé jafnbreið veginum, og þarf ekki annað en að fara um Hafnarfjarðarveginn, til þess að sjá dæmi um þetta.
Vona ég, að hv. deild geti a. m. k. samþ. liðina 2–7. Er fullt eins mikil ástæða til að taka þá til greina og margt af því, sem samþ. hefir verið á þessu þingi. Hefi ég a. m. k. ekki orðið þess var, að hv. þm. Barð. hafi borið nokkuð það fram á Alþingi, sem er eins mikils virði.
Um 8. lið mun fremur orka tvímælis, en eins og nú háttar til er álit þm. ekki ákveðið um það, hvaða vegi beri helzt að leggja, og sama máli gegnir um kostnaðaráætlanir. Verði till. samþ., ætti ekki alltaf að þurfa að koma sama rifrildið, þegar til umr. eru vegalagningar um héruð landsins.
Menn sjá, að það verður að vanda betur vegi þá, sem lagðir eru, en áður, eins og t. d. Hafnarfjarðarveginn. Þyrfti að setja slitlag á hann, og þarf þetta rannsóknar við af stj. og öðrum hlutaðeigendum.