18.08.1931
Neðri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í D-deild Alþingistíðinda. (1662)
28. mál, vegamál
Magnús Jónsson:
Hv. frsm. sagði áðan, að þetta mál væri lítilfjörlegt. Held ég því, að menn muni ekki hafa gert sér grein fyrir því, hve stórar ákvarðanir felast í till., sérstaklega í 1. og 8. lið. T. d. er það ekkert smáræði að ákveða, að engir akvegir skuli lagðir mjórri en 4 metrar. Er það ekki í lítið ráðizt að virða að vettugi vilja margra héraða um það að fá vegina sem fyrst, þótt þeir yrðu ekki eins fullkomnir og annars. Líka er það stórt atriði, að Alþingi ákveði í eitt skipti fyrir öll, hvernig vegalagningum skuli hagað.
Aftur á móti játa ég, að önnur atriði eru smávægileg. Er það auðséð, að sumir þeir, er till. bera fram, eru ekki eins miklir sérfræðingar í þessum málum og þeir vilja vera játa. Hafa þeir orðið að taka aftur ákvæðið um það, hvernig forðast skuli, að vegur og brú yfir ræsi séu mishá, enda hafa þeir auðsjáanlega ekkert vit á þessu. Halda þeir, að nóg sé, að nægilega þykk steypa sé höfð á brúnum. Ég býst ekki við, að hægt sé að búa svo um, að brýrnar haldist í sömu hæð. Þetta kemur af því, að vegurinn lækkar við það, að hann sígur, hann slitnar og það fýkur úr honum o. s. frv. Býst ég ekki við, að hægt sé að búa þannig um þetta nema með steinsteypuvegum. Gott viðhald er það eina, sem dugir, eins og nú er ástatt. Mér finnst þessi till. öll saman bera vott um það, að hv. flm. séu ekki vaxnir upp úr þeim barnasjúkdómi, sem kemur víða fram hjá þeim, sem óvanir eru að fara með opinber mál. Þessa framhleypni og ofvitaskap tók Holberg fyrir forðum, hið bezta kímnisskáld á Norðurlöndum, í leikritinu um pólitíska könnusteyparann.
Það er algengt, að menn vasist inn á svið þeirra, sem búnir eru að þrauthugsa mál, sem tilheyra sérfræði í þeirra starfi, og fari að ráðleggja um hitt og þetta. Það er alveg eins og þessir hv. þm. haldi það t. d., að vegamálastjóra og verkstjórum hafi aldrei dottið í hug að setja steinstöpla með vegum og gera brýr jafnbreiðar vegum. Að þeim hafi aldrei dottið í hug að gera vegina beina að brúnum.
Hver einasti liður í þáltill. er hlutur, sem vegamálastjóri, verkstjórar og aðrir, sem um þessi mál hafa hugsað, eru búnir að velta fyrir sér án þess að þurfa að sækja neitt vit til þessara hv. þm. Og þessir hv. þm. mega ekki halda, að það sé af eintómri heimsku eða illgirni, að vegirnir eru ekki hafðir breiðari. Breidd vega, sem er mjög misjöfn, er áreiðanlega ákveðin að vel yfirlögðu ráði og öllum ástæðum athuguðum í hvert skipti. Og það þýðir ekki að segja bara, að útskotin séu dýrari en að breikka allan veginn. Þetta er reikningsdæmi, sem verður að reikna í hvert skipti. Í mörgum kringumstæðum getur verið miklu ráðlegra að byggja fyrst veginn mjóan og breikka hann svo, jafnvel þótt heildarkostnaður verði hærri með þessu móti. En þessi mjói vegur getur verið búinn að gera svo mikið gagn, að þessi aðferð við vegalagninguna margborgi sig.
Ég skal nú ekki deila mikið um það, hvort heppilegt sé að hafa steina á vegbrúnum til að afstýra slysum, þar sem beygjur eru og hátt niður. Mér skildist á hv. 3. þm. Reykv., að honum væri sama þó að bíllinn skemmdist við að rekast á þessa stöpla. Óneitanlega er betra að stöðva án þess að skemma skrjóðinn við árekstur. Annars eru þessir steinstöplar leifar frá þeim tíma, þegar Rómverjar voru að leggja sína frægu vegi, og voru sem einskonar leiðarvísar á varasömum stöðum, svo að hestar og uxar gættu sín betur. En nú, þegar þeyst er í bifreiðum, þá er hentugra ef hægt er að hafa varnir á vegbrúnum, sem stöðva án þess að skemma.
Ekki skal ég ræða mikið um brýr á ræsum, því að þar hafa hv. flm. játað vanþekkingu sína, ekki sízt með því að taka Hafnarfjarðarveginn til dæmis. Því að ef til er vegur, sem mikið er notaður og því mikið vaðinn út, þá er það Hafnarfjarðarvegurinn. Hann er því eitt langskýrasta dæmi þess, hvernig brýrnar geta orðið mjórri en vegurinn, þótt jafnbreiðar séu í fyrstu. Og það er þá þetta ástand, sem flm. vilja viðhalda, þar sem þeir gera þá áskorun, að ræsi verði byggð jafnbreið vegum. til þess að þegar vegurinn er flattur út, séu nægileg skörð til að geta ekið ofan í. Þeir vilja afturför frá þeim hætti, sem nú er tekinn upp, að byggja brýrnar upphaflega breiðari en vegina.
Þá er að minnast á króka á vegum við brýr. Ég held hv. flm. setji þetta í till. til þess að geta komið að þessari fyndni um Z-lögun á vegum. Það skyldi þá ekki eiga að vera fangamark vegamálastjóra sjálfs, sem hann vill setja sem allra víðast á landið!
Í fyrsta lagi er það að athuga, að víða eru gamlir vegir, sem lagðir voru fyrir vagnaumferð. Það er alkunnugt með S-ið á leiðinni til Hafnarfjarðar; það er til þess að hestum gæti veitt léttara að komast með æki upp brekkuna. Þess er engin þörf fyrir bifreiðar. Kambavegurinn frægi er lagður fyrir hesta. Krókarnir eru óhentugir fyrir bifreiðar, en þær þola mikinn halla.
Um Gljúfurárbrúna, sem hv. þm. tók sem dæmi, er það að segja, að hún var byggð löngu áður en bílar voru fundnir upp í veröldinni, enda er hún með elztu steinsteypubrúm á landinu. Býst ég ekki við, að það þurfi að neyða vegamálastjóra með þingsályktunum til að gera hana hentugri þegar brúin verður endurbyggð. Annars er það satt að segja, að lögun á vegum við brýr er í mörgum tilfellum ákaflega eðlilega mótuð af landslaginu. Brýr eru byggðar þar, sem árfarvegur er djúpur, enda væri óðs manns æði að hlaða upp með þeim beggja megin. Oft verður svo að sniðskera niður brekku og þá að sjálfsögðu að hafa beygju yfir á brúna, sem liggur stytztu leið yfir vatnsfallið. Væri nokkur meining að brúa endilega ána í sömu stefnu og vegurinn liggur að? Ég held, að bezta lausnin á þessu sé, að bílarnir fari bara hægt á brúarsporðana, þar sem með þarf.
Nei, það verður að fela þetta mál þeim, sem um þetta eiga að sjá. Það er ekki til neins að þjóta upp til handa og fóta út af einhverjum erfiðleikum, án þess að gera sér minnstu grein fyrir orsökum þeirra.
6. og 7. liður till. eru góðir út af fyrir sig. Ég er hissa, hvað staðið hefir lengi á því yfirleitt að setja upp hættumerki og leiðarvísa við vegi. Að því leyti er dagskrá hv. þm. Barð. heppileg, að hún bendir að einstökum liðum, sem gott er að vísa til athugunar og til að reka á eftir, ef þörf er á.
Í till. er talað um að undirbúa almenn vegalög og leggja fyrir næsta þing ásamt kostnaðaráætlun fyrir hvern veg, og ennfremur samskonar áætlun um slitlag veganna. Ég hefi nú áður minnzt á það, að ég er ekki hrifinn af þessari vegalöggjöf. Henni yrði auðvitað alltaf breytt á hverju þingi, að ég ekki minnist á það, að önnur eins stjórnarvöld og við höfum haft geta gert annað eins og að víkja frá slíkri löggjöf. Í lögum frá 1921 um bifreiðaskatt er svo ákveðið í 5. gr., að það skuli stofna sérstakan sjóð af þessum skatti og stjórnin geyma hann. Það er heimilt að verja fé úr sjóðnum eftir till. vegamálastjóra til þess að greiða aukakostnað, sem stafar af því að setja slitlag, annaðhvort grjótmulning eða steypu, þar sem umferðin er mest. Tilgangurinn virðist sá, að bílarnir njóti á þennan hátt þess skatts, sem á þá er lagður. En ég veit ekki betur en þessi 1. hafi verið algerlega dauður bókstafur um langan tíma. Það mun hafa verið varið fé úr þessum sjóði til að gera slitlag á kafla á veginum á Hellisheiði, slitlagið hjá Hólmi og eins suður með sjó. En nú síðustu árin veit ég ekki betur en þessi bifreiðaskattur hafi algerlega horfið inn í annað vegaviðhaldsfé og 1. frá 1921 algerlega verið höfð að engu.
Hefði ég verið svo heppinn nú að hitta á þær fáu sekúndur, sem einhver ráðh. er við, mundi ég beina fyrirspurn til hans um þetta; en því er ekki að heilsa. En mér finnst meðferðin á þessum l. sýna það ljóslega, hve litla þýðingu það hefir að ákveða nánar um þetta í lögum, hvernig fénu skyldi varið. Yfirleitt er of mikið gert að því á Alþingi að hnitmiða allt niður, en svo kemur stj. og ryður öllu til.
Jæja, þarna kemur þá hæstv. forsrh., og hann hefir verið atvmrh. Ég vildi mega spyrja hæstv. ráðh., hvernig stendur á því, að þar sem í l. frá 1921 um bifreiðaskatt er tiltekið, að honum skuli sérstaklega varið til slitlags á vegum, þá skuli þau l. ekki hafa verið höfð að neinu, heldur féð látið hverfa algerlega inn í annað viðhaldsfé? (Forsrh.: Það var höfð). Ég held þetta sé alls ekki rétt, því að fyrst um sinn var gert allmikið af slitlagi, en því er algerlega hætt upp á síðkastið.
Enda þótt ég geti verið sammála nokkrum liðum þessarar till., þá sé ég ekki ástæðu til að fylgja henni við atkvgr., en mun greiða atkv. annarihvorri rökstuddu dagskránni, sem fyrir liggur.