15.08.1931
Neðri deild: 30. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í D-deild Alþingistíðinda. (1726)

272. mál, björgunarstarf og eftirlit með fiskibátum

Flm. (Vilmundur Jónsson):

Till., sem fór í sömu átt og þessi, var flutt á síðasta þingi, en náði þá ekki fram að ganga.

Eins og kunnugt er, er Þór sérstaklega ætlað björgunarstarf við Vestmannaeyjar á vetrarvertíðinni þar. En svipuð þörf er á slíkri björgunarstarfsemi víða annarsstaðar fyrir ströndum landsins, einkum þó á Vestfjörðum og úti fyrir Siglufirði. Nú stendur svo vel á, að hægt er að stilla svo til, að sama skip geti að mestu annazt björgunarstarfsemi á þessum stöðum öllum, vegna þess að þörfin er mest aðkallandi á mismunandi tímum á hverjum stað. Siglfirðingar þurfa sérstaklega á skipinu að halda frá 1. sept. til októberloka, en Vestfirðingar frá því í nóvembermánaðarbyrjun og til janúarloka. Vestmannaeyjar þurfa hinsvegar ekki skipsins við fyrr en komið er fram í janúar. Þó að þarfir Vestmannaeyinga og Vestfirðinga gangi þannig dálítið á misvíxl í þessum eina mánuði, ætti að mega bæta úr því með því að láta annað skip hlaupa í skarðið á öðrumhvorum staðnum þann stutta tíma. Ég vil ekki gera upp á milli þarfanna fyrir björgunarstarfsemi á þessum þremur stöðum. Þó hygg ég, að dæmin sanni, að slysahættan hin síðari ár sé langmest úti fyrir Vestfjörðum. Hvert haustið eftir annað farast þar fiskiskip með allri áhöfn, enda deyja þar til uppjafnaðar fleiri menn af slysförum en úr nokkurri sótt.

Björgunarstarfsemin getur einnig sem bezt samrýmzt landhelgisgæzlunni, því að það liggur í augum uppi, að mest þörf er á landhelgisgæzlu þar og á þeim tíma árs, sem veiði er mest stunduð. Hinsvegar gæti verið, að björgunarstarfið þætti koma í bága við fiskveiðar Þórs, en bæði mun sú útgerð vera vafasamt fyrirtæki og rekin í fullu heimildarleysi. Ef ástæða þykir til að lækka fiskverðið fyrir Reykvíkinga og nærsveitirnar — sem að vísu er mikil nauðsyn —, ætla ég, að nær væri að veita til þess beinlínis fé úr ríkissjóði eða landhelgissjóði heldur en að gera það óbeinlínis á þann hátt að láta varðskipin stunda fiskveiðar og selja fiskinn undir kostnaðarverði og vanrækja þar með landhelgisvarnirnar eins og gert hefir verið —, að ég ekki tali um, ef þar að auki á að gefa mannslíf á milli.