03.08.1931
Neðri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (1753)
56. mál, kartöflukjallari og markaðsskáli
Frsm. (Pétur Ottesen):
Það er hvorttveggja, að í grg. þessa frv. eru teknar fram ástæðurnar fyrir því, að það er borið fram, og að hv. þm. Mýr. reifaði málið svo við 1. umr., að ekki er þörf um að bæta.
Aðalástæðan fyrir því, að frv. er borið fram, er sú, að með þessu er gerð tilraun til þess að tryggja það, að þeim markaði, sem til er í landinu fyrir rótarávexti, og þ. á m. kartöflur, verði sem bezt fullnægt með innlendri framleiðslu. Það, sem hingað til hefir staðið í vegi fyrir því, að þetta mætti verða, er það, að hér hefir enginn hentugur staður verið til þess að geyma þessar vörur. Afleiðingin af þessu hefir orðið sú, að það hafa verið fluttar inn kartöflur frá útlöndum fyrir fleiri hundruð þús. kr. árlega.
Ef hér væri til staður, þar sem hægt væri að geyma þessar afurðir á öruggan hátt, og sem gerði það, að hægt væri að flytja þær hingað á þeim tíma, þegar það er hægast, þ. e. á haustin rétt eftir uppskeruna, þá væri hægt að nota þennan markað miklu betur en nú er. Og þá væru fengin skilyrði til þess að stíga það spor að fullnægja þörfinni með innlendum kartöflum. — Það er raunar víðar á landinu, sem nokkuð svipað stendur á eins og hér, án þess að í frv. séu gerðar ráðstafanir því viðvíkjandi. En það er ekki að efa, að ef hér verður byrjað, þá verður haldið áfram á þessari braut, og afleiðingin yrði sú, að við gætum sparað þær 400–500 þús. kr., sem árlega fara til útlanda fyrir þessar vörur. Málið hefir því mikla fjárhagslega þýðingu.
Það þarf ekki að fara að rekja hér það fyrirkomulag, sem við flm. höfum hugsað okkur og n. hefir orðið okkur flm. sammála um, því það hefir áður verið gert. En ég vil þó benda á, að meiningin er, að ríkissjóður leggi fram það fé, sem nauðsynlegt er til þess að hrinda málinu í framkvæmd. Jóh. Kristjánsson húsameistari hefir gert áætlun um, hvað kosta myndi kjallari, sem tæki 10 þús. tunnur af kartöflum, og markaðsskáli, sem byggður væri ofan á kjallarann. Jóhann gerir ráð fyrir, að slík bygging kosti um 50 þús. kr. En þar sem það hefir þótt við brenna hér á landi, að áætlanir verkfræðinga þættu ekki sem ábyggilegastar, en n. þótti rétt að fara ekki fram úr þessari fjárhæð, þá leggur hún til, að þessi hlið málsins verði gaumgæfilega rannsökuð áður en til framkvæmda komi og ekki ráðizt í stærri byggingu en það, að kostnaðurinn við hana færi ekki fram úr 50 þús. kr.
Þá má segja, að þótt hér sé gert ráð fyrir að koma upp öruggri geymslu, þá var okkur samt ljóst, að það er nauðsynlegt, til þess að tryggja þetta fyrirtæki, að koma í veg fyrir alla áhættu. Þá væri nauðsynlegt, að skilyrði væru fyrir hendi til þess að vátryggja þær kartöflur, sem þarna á að geyma. Við höfum því fengið mann, sem kunnugur er allskonar tryggingarstarfsemi, til þess að gera uppkast að frv. um það. Koma till. hans væntanlega innan skamms.
Um markaðsskálann er það að segja, að það er algengt erlendis, að framleiðendur eigi þess kost að selja sjálfir afurðir sínar á hentugum stað í borgum og bæjum beint til neytendanna. Þetta þykir hvarvetna hagkvæmt fyrirkomulag. Með þessu vinnst tvennt. Framleiðendur fá það verð, sem eðlilegt er á hverjum tíma fyrir afurðirnar, og neytendurnir fá vöruna með raunverulegu framleiðsluverði án álagningar milliliða. Slíkt fyrirkomulag á hér engu síður við en erlendis. Með því móti mundu framleiðendur, ekki einungis þeir, sem búa hér á næstu grösum, heldur og þeir, sem fjarlægari eru, koma með og senda afurðir sínar til sölu á markaði. Sú litla tilraun, sem hér hefir gerð verið með þannig lagaða sölu, hefir gefizt ágætlega og sýnt til fullnustu, að þetta er hagkvæmt bæði fyrir seljanda og neytanda.
Þó að gert sé ráð fyrir því, að ríkissjóður leggi fram fé til að koma þessu í framkvæmd, þá er það meining okkar flm. og n., að þegar þetta er komið í framkvæmd, verði fyrirtækið selt framleiðendunum eða félagsskap þeirra á þann hátt, að ríkissjóður fái greitt það fé, sem lagt hefir verið fram til þessa fyrirtækis.
Okkur þótti ástæða til þess að tryggja það, að menn utan þess félagsskapar gætu einnig átt aðgang að markaðsskálanum. Höfum við því sett inn í 5. gr. frv. ákvæði um það, að þeir, sem utan félagsskaparins standa, en nota vilja markaðsskálann, þurfi ekki að sæta afarkostum um leigu fyrir not sín af honum. Ég held, að það sé nokkurn veginn vel frá þessu gengið, en vitanlega tökum við öllum þeim bendingum, sem til bóta mættu horfa.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum að sinni. Breyt., sem n. leggur til, eru til þess að tryggja það, að ekki þurfi að verja meiri fjárhæð til þessa fyrirtækis en þar er tiltekið, og að kjallarinn verði byggður á lóð, sem ríkissjóður á og hagkvæm sé til þessara hluta.