03.08.1931
Neðri deild: 19. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í C-deild Alþingistíðinda. (1755)
56. mál, kartöflukjallari og markaðsskáli
Frsm. (Pétur Ottesen):
Í tilefni af ræðu hæstv. forsrh. vil ég segja nokkur orð út af því, sem hann sagði um það, að það gæti rekizt á, annarsvegar það, að gert er ráð fyrir, að kjallarinn rúmi 10 þús. tn. af kartöflum, en hinsvegar það, að kostnaður fari ekki fram úr 50 þús. kr. Við nánari athugun um kostnaðinn gæti svo farið, að skakkaði einhverju. En það varð að samkomulagi og við flm. gengum inn á að einskorða upphæðina við 50 þús. kr. En ef nánari athugun leiddi í ljós, að þetta gæti ekki staðizt, þannig að ekki væri hægt að byggja svo stóran kjallara fyrir þessa upphæð, þá yrði kjallarinn að vera minni en gert var ráð fyrir. Ég held, að það þyrfti ekki að verða árekstur út af þessu.
Um það atriði, hvort eigi að reka fyrirtækið þannig, að það renti sig og svari afborgunum á löngum tíma, þá er meiningin vitanlega sú, að þessu fyrirtæki sé komið á fót og rekið ríkissjóði að skaðlausu. En greiðslunni verður jafnað niður á langan tíma. (Forsrh.: 30–40 ár?). Það fyndist mér vera vel viðeigandi í þessu tilfelli. Um það, hvort ekki sé nægilegt í bili, að úr þessu verði bætt með því að leigja kjallara, þá er við því að segja, að það er náttúrlega aðalatriðið, að þetta komist í framkvæmd sem allra fyrst, en ef þannig er ástatt fyrir ríkissjóði, að ekki er hægt að leggja þetta fé fram, þá fyndist mér, að komið gæti til mála að leigja kjallara eða einhvern annan öruggan geymslustað, og þá helzt að í sambandi við hann væri aðstaða til að selja á opnum markaði. En þess yrði vel að gæta, að leigja ekki annan kjallara en þann, sem öruggt væri um, að kartöflurnar væru vel geymdar í. Það gæti orðið til mikils hnekkis og skaða, ef þær væru geymdar þar, sem frost og aðrar skemmdir næðu þeim. Það gæti orðið til að hefta framkvæmdir á þessu um ófyrirsjáanlegan tíma.
Ég held, að það hafi ekki verið fleira í ræðu hæstv. forsrh., sem ég þarf að svara. Að öðru leyti vil ég þakka honum fyrir góðar undirtektir í þessu máli. Ég vænti þess, að þær kringumstæður verði fyrir hendi, ef frv. verður samþ., að hægt verði að hrinda þessu máli í framkvæmd, því það er enginn vafi á því, að þetta getur orðið til mikilla hagsmuna fyrir landið í heild.