06.08.1931
Neðri deild: 22. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í B-deild Alþingistíðinda. (176)

1. mál, fjárlög 1932

Jón Ólafsson:

Hv. þm. G.-K. var með, ýmsar glósur í minn garð út af þessum miklu lóðakaupum hæstv. stj. Hv. þm. sagði, að ég hefði ekki vítt alla eyðslustj. eins og þessa nú. Ég ætla að segja honum það, að ég læt mér ekki alltaf ótt með að vita það, sem illa hefir farið. Og þó að það komi fyrir, er mér samt miklu kærara að vara menn við hættu, áður en hún er skollin yfir, en að ráðast á fallna menn, sem hafa gert eitthvað, sem ekki er hægt að bæta úr eftir á. Ég sný ekki aftur með það, að ég lít á þessi lóðakaup sem eintóma heimsku og ekkert annað.

Viðvíkjandi því, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði um fegurð bæjarins, að þarna ætti að reisa fögur stórhýsi, þá vil ég benda á, ef verið er að leita að fallegum lóðum hér í bæ, þá væri sjálfsagt að kaupa lóðir á Landakotstúni, sem vafalaust mætti fá langtum ódýrari en þessar lóðir milli menntaskólans og Bankastrætis. — Mér líkaði það vel, að hv. 4. þm. Reykv. dró inn öll sín stóryrði í lok ræðu sinnar. Þetta er svo greindur og mætur maður, að hann þarf að tala mikið, og mér finnst, að við ættum heldur að draga fjöður yfir það og afsaka, þó að það komi oftlega fyrir, að hann tali allt of mikið.