05.08.1931
Neðri deild: 21. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í C-deild Alþingistíðinda. (1763)

56. mál, kartöflukjallari og markaðsskáli

Frsm. (Pétur Ottesen):

Það kom hér fram við 2. umr. þessa máls, að það gæti orðið árekstur út af því, að það er ákveðið í frv., hvað kartöflukjallarinn skuli vera stór, en hinsvegar jafnframt ákveðið, að kostnaðurinn megi ekki fara fram úr 50 þús. kr. Því var sem sé slegið föstu í n., að ekki skyldi varið stærri fjárhæð en þetta til þessara framkvæmda. Þess vegna flytjum við brtt. um, að kjallarinn rúmi „allt að“ því, sem tiltekið er í frv., og ætla ég, að þá sé girt fyrir árekstur í þessu efni.

Þá lýsi ég yfir því, að ég tek aftur 2. brtt. á þskj. 199.