20.08.1931
Efri deild: 34. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í C-deild Alþingistíðinda. (1769)

56. mál, kartöflukjallari og markaðsskáli

Frsm. (Páll Hermannsson) [óyfirl.]:

Það hefir auðsjáanlega vakað fyrir flm. þessa frv., að hugsa þurfi fyrir meiri ræktun jarðepla og annars garðmatar hér á landi en nú er, og eins hitt, að góð geymsla yfir veturinn gæti ýtt undir slíka ræktun.

Landbn., sem hafði málið til meðferðar, féllst á þá hugsun, að jarðepli ætti að rækta meira á landi hér en gert er og að rækta beri eins mikið af slíkum ávöxtum og landsmenn hefðu þörf fyrir. N. var líka sammála flm. um það, að góð geymsla myndi greiða fyrir ræktun og sölu hér í höfuðstaðnum. Hinsvegar leit n. svo á, að ekki væri ástæða til þess að búast við því, að taka þyrfti til þeirrar heimildar um fjárframlög, sem frv. fer fram á. Taldi n. víst, að hægt myndi að útvega húsnæði í þessu skyni á annan hátt en að byggja, en gerir hinsvegar ráð fyrir, að þessi bygging muni fljótlega koma og þessi viðskipti lenda í höndum samvinnufél. eða samlaga, sem sæju um þetta sjálf og legðu fram fé til þessara þarfa. N. þótti þó rétt að halda þessari heimild fyrir stj. til að verja 50 þús. kr. til þessarar byggingar, ef svo færi, að á henni skyldi þurfa að halda.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða sérstaklega um einstök atriði frv. Það hefir gengið í gegnum Nd. við góðar undirtektir, og n. er sammála Nd. um afgreiðslu málsins að öðru leyti en því, að hún býst varla við, að til. þessara fjárframlaga þurfi að taka. Leggur n. því til, að frv. verði samþ. óbreytt.