21.08.1931
Efri deild: 35. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í C-deild Alþingistíðinda. (1776)

56. mál, kartöflukjallari og markaðsskáli

Jón Baldvinsson:

Hv. 1. þm. Reykv. lýsti því réttilega í ræðu sinni, að það er um lítilfjörlegar atvinnubætur að ræða í frv., þó ráðizt væri í að byggja hús, og af þeirri ástæðu ekkert keppikefli að samþ. frv. Í öðru lagi er hér aðeins um heimild að ræða, svo það getur dregizt að það komi að notum, eftir því að dæma. hvernig stj. lýsir fjárhag ríkissjóðs og hve erfitt sé með fé. Það er því ekki að búast við því, að þetta verði miklar atvinnubætur. En það er gott að hafa viðtækari heimild í frv., svo hægt sé að þreifa sig áfram með það, hvernig bezt er að haga þessari geymslu. Það væri ágætt að taka þjóðleikhússkjallaraun til þessara afnota, þar sem hagar nú líka svo vel til, að markaðsskálinn, sem í frv. er talað um, gæti verið ofan á kjallaranum. Ég get ekki skilið, að það sé verið að lítilsvirða leikhússbygginguna, þó kartöflur væru geymdar í kjallaranum. Og ég skil ekki, að listamennirnir séu svo fínir, að þeir geti ekki verið í húsi, sem kartöflur hafa verið geymdar i. Og ég trúi því tæplega, að þeir neiti að taka við peningum fyrir aðgöngumiða, sem karlarnir á Akranesi hafa fengið fyrir kartöflur sínar. Ég veit ekki, hvers vegna hv. þm. tekur þetta svo óstinnt upp, þar sem ekki er um óvirðulegri matvæli að ræða en kartöflur.

Ég heyri sagt, að það vaki fyrir ýmsum að geyma þarna Spánarvín, og ég geri ráð fyrir, að hv. þm. þyki það ekki virðulegra að geyma þar „dogbrand“ og annað slíkt.

Hv. 3. landsk. kom fram með mótmæli gegn brtt., sem ég álít, að séu á misskilningi byggð. Ég er ekki að draga úr því, að framleiðslan blómgist. (JónJ: Það er nú samt gert). Nei, það er rangt hjá hv. þm. Í frv. er aðeins heimild til þess að byggja, og ef stj. hefir ekki fé, þá gerir hún ekkert. En í minni till. er heimild fyrir stj. til þess að leigja hús. (JónJ: En ef það fæst ekki með sæmilegum kjörum?). Þá getur fleira komið til greina, þó mér hafi ekki dottið í hug nema þjóðleikhússkjallarinn. — Ég tel þetta til bóta fyrir frv. og tel líklegt, að það verði að gagni þeim mönnum, sem að framleiðslunni vinna.