06.08.1931
Neðri deild: 22. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 315 í B-deild Alþingistíðinda. (180)
1. mál, fjárlög 1932
Frsm. (Hannes Jónsson) [óyfirl.]:
Hv. 2. þm. Skagf. vildi halda því fram, að ég hefði rangfært þau orð hans um tekjur þessa árs, að líkur væru til, að þar yrði afgangur, svo framarlega sem tekjuáætlun n. fyrir næsta ár væri rétt. Ég býst við, að hv. þm. viðurkenni það, að stj. haldi sér innan ramma fjárl., þó að hún greiði þær upphæðir, sem leiðir af sérstökum l., þál. og heimildum, sem ekki er áætlað fé fyrir í fjárlagafrv. Og ég geri ennfremur ráð fyrir, að hann álíti, að stj. haldi sér innan þessa ramma, þó að hún greiði þau gjöld ríkisins, sem ekki er áætlað nægilegt fé fyrir í fjárlagafrv. Og ég hafði sýnt með allgreinilegum rökum fram á, að þessar greiðslur mundu verða það háar, að útgjöld ríkisins á yfirstandandi ári mundu verða talsvert á 15. millj. kr. En tekjurnar eru áætlaðar, samkv. því sem n. leggur til, um 13½ millj. kr. Þó að tekjuáætlun fjvn. stæðist, er langt frá því, að ástæða sé að ætla, að tekjur yfirstandandi árs færu fram úr því, sem nauðsynlegt er til að standast útgjöld þau, sem fjárl. og önnur gildandi l. gera ráð fyrir.
En það, sem ég var að vita hjá hv. þm., var það, að hann með sínu tali um líklegan tekjuafgang á þessu ári væri að gefa undir fótinn um það, að óhætt væri að hækka enn gjöld ríkisins. Það var þetta, en ekki það, að hann hvetti til óvarfærni með orðum sínum um þjóðeignir ríkisins og bráðabirgðalántöku til rekstrar þeirra. Hv. þm. getur ekki rökstutt þessa skoðun sína með því að segja, að í fjárlagafrv. séu ýmsir útgjaldaliðir, sem ekki séu nægilega hátt áætlaðir, því að það mun sízt vera betur séð fyrir þeirri áætlun í gildandi fjárl., svo að enn minni líkur eru fyrir því, að tekjur hrökkvi fyrir útgjöldum, hvað þá heldur að verði tekjuafgangur. (Rödd af þingbekkjum: En tekjurnar eru svo varlega áætlaðar). Það hefir ekkert að segja, þegar sannanlegt er, að þær verða að vera hátt á 15. millj. til að standast greiðslur.
Um þær einstöku brtt., sem hv. þm. fór inn á, vil ég vera stuttorður, því að þar kom ekki neitt nýtt fram, sem þarf að svara.
Um eftirlaunaviðbót til Ólafs Stephensens vil ég segja það, að ég hefi ekki fengið neina sönnun fyrir því, að honum séu ákveðin nein viss eftirlaun. Og meðan það er ekki, get ég ekki fallizt á að veita honum viðbótareftirlaun.
Viðvíkjandi eftirlaunum til Ögmundar Sigurðssonar þurfti hv. þm. ekki að gylla ágæti þessa manns fyrir hv. d., því að flestum mun það kunnugt, að hann stóð vel í stöðu sinni. En hér er aðeins um það að ræða, hvað öðrum er veitt í þessu augnamiði. Og ég tek sem dæmi, að Jóhannesi Sigfússyni voru ekki ákveðin nema 1200 kr. eftirlaun, sem seinna hækkuðu upp í 1800 kr.
Hv. þm. Vestm. var enn að kvarta yfir fjarveru minni við fjárlagaumr. í fyrrakvöld, og sagði á þá leið, að ég vanrækti að hlusta á mestan hluta umr. um brtt. Þegar hann sagði þetta, höfðu um það bil 25 deildarmenn staðið upp og mælt fyrir sínum till. En í fyrrakvöld, þegar ég var að horfa á heimsmeistarann tefla kappskák í K. R.-húsinu, töluðu aðeins 5 menn. Og þessir 5 þm. eru að dómi hv. þm. Vestm. mestur hluti af þessum 25. (JAJ: Ég talaði þá). Hafi hv. þm. N.-Ísf. haldið sína ræðu þá, sem var ekki (JAJ: Það var önnur ræðan), hefi ég ekki mikla trú á því, að hv. dm. hafi sannfærzt um það, að það hafi verið mestur hluti af því, sem sagt var hér í deild um fjárl., né heldur það, sem mestu máli skipti.
Hv. þm. Vestm. minntist á nokkrar brtt., sem hann er við riðinn, og ég hafði skýrt frá afstöðu n. til. M. a. taldi hann hreinustu fjarstæðu að ætlast til, að unnið væri að byggingu sumarskýlis símamanna í Reykjavík í sambandi við landssímann. Þar sem landssímastjóri er embættismaður landsstj., finnst mér ekki nema réttlátt og eðlilegt, að hann leiti samkomulags við stj. um það, hvernig þessu máli skuli hagað. Mér finnst, að ósköp vel geti beðið til næsta þings ákvörðun í þessu efni, og að símafólkið geti rætt þetta mál við hæstv. stj. og fengið út úr því það bezta, og kannske stuðning stj. til þess að mæla með framlagi til byggingarinnar.
Um það, sem hv. þm. sagði um Stórstúkuna, vil ég ekki fjölyrða mikið. Hann kvaðst ekki hafa haldið því fram, að þessi styrkhækkun mundi bæta að öllu leyti þá óreglu, sem stafar af vínnautn í landinu. En hv. þm. fjölyrti mest um það í ræðu sinni, hvað allt er komið í grænan sjó, og mér skildist á honum, að þessar 2 þús. kr. mundu verða til þess að koma öllu á réttan kjöl.
Hv. þm. vildi andmæla því, sem ég sagði um íhlutun ríkisstj. um það að draga úr útgerðarkostnaði Eimskipafél., með því að segja, að ríkisstj. hefði í stj. fél. einn mann fyrir sína hönd og einn af endurskoðendum, og hann hefði enn ekki orðið þess var, að þessir menn hefðu skrifað með ágreiningi undir reikninga félagsins. Þetta er náttúrlega rétt. En það sannar ekkert um það, að þessir menn séu sammála því, sem gerzt hefir hjá Eimskipafél. Og í því sambandi vil ég upplýsa hv. þm. um það, að hinn stjórnskipaði stjórnarnefndarmaður í Eimskipafél. var mjög mikið á móti því á sínum tíma, þegar félagið réðst í að byggja Dettifoss, sem kostaði fél. 1½ millj. kr. Hann lagði þá til, að fél. reyndi að komast að skipakaupum á ódýrari hátt. En till. hans var ekki sinnt, og afleiðingin varð, að fél. sigldi fjármálum sínum í strand með skipakaupunum og stóð uppi rekstrarfjárlaust. Af fjárþröng fél. hefir leitt, að það hefir orðið að sæta lakari tryggingarkjörum en ella myndi. Tapast þar 30–40 þús. kr. (ÓTh: Hversu mikið þurfti félagið af handbæru fé?). Það er mér ekki fyllilega kunnugt um, en augljóst er, að því meira sem félagið festi af fé sínu, því erfiðara hlaut að vera að hafa fjármálin í lagi. Ennfremur má geta þess, að mikill ágreiningur varð um húsbyggingu félagsins. Stóðu þeir Ásmundur Jóhannsson og Ragnar Ólafsson fast á móti því, að húsbyggingin yrði svo dýr sem hún varð, en fengu engu ráðið fyrir meiri hl. Einn stjórnarmaðurinn lýsti jafnvel yfir, að leitt væri að hafa ekki getað haft húsið helmingi stærra. Þessi dæmi sýna, að full ástæða er til að hindra svo ógætilega meðferð á fé fél., þar sem ríkið leggur því svo mikinn styrk árlega. Má einnig benda á það, að skrifstofukostnaður fél. nemur um 200 þús. kr. á ári hverju. Þetta er hár liður, sem máske þyrfti athugunar við. Það er því sannarlega ekki ástæðulaust, þótt Alþingi vilji gera ráðstafanir til að allrar varfærni sé gætt í fjármálum fél.
Hv. þm. Seyðf. vildi halda því fram, að fjvn. hefði ekki viljað veita ábyrgð til skipakaupa á Seyðisfirði, af því að lánið hefði átt að taka hérlendis. Þetta getur maður sagt, vægast talað, að sé að fara ógætilega með sannleikann. N. meinti með afstöðu sinni, að óþarfi væri að ganga í þessa ábyrgð, af því að fél. gæti keypt skipin innanlands og fengið yfirfærslu í bankanum, á sama hátt og gert var á Eskifirði.
Viðvíkjandi ummælum hv. þm. N.-Ísf. um læknisvitjanastyrk til Nauteyrarhrepps er það að segja, að leitað var til n. með þeim forsendum, að héraðið væri læknislaust. N. vildi veita þenna styrk með sömu skilyrðum og öðrum héruðum, er fengið höfðu slíkan styrk, höfðu verið sett, en ekki gefa hér fordæmi með neinni nýbreytni.
Annars voru ræður sumra hv. þdm. um brtt. sínar næsta viðkvæmar og háfleygar. Hv. 1. þm. S.-M. sótti nokkuð langt rök sín til að styðja brtt. sína um 1500 kr. styrk til útgáfu kennslubókar í spönsku. Var svo á honum að heyra, að mikil hætta stafaði af því, ef Alþ. sinnti ekki þessari fjárbeiðni; Spánverjar myndu sennilega breyta tolllögunum frá 1922 oss í óhag, og jafnvel viðskiptastríð af hljótast. Ég skal nú játa, að ef svona mikið væri í húfi, myndi ég ekki hafa á móti þessum styrk. En ég skil ekki, hvernig við höfum flotið án kennslubókar í spönsku til þessa, fyrst þessi hætta er svona mikil nú. Hv. þm. sagði, að fjárhagsráð Spánar hefði verið að benda Spánverjum á, að þeir keyptu af oss fisk fyrir 30 millj. peseta árlega, en við salt af þeim fyrir einar 200–300 þús. kr. En þetta hefir nú gengið kennslubókarlaust árum saman, og því kemur mér ræða hv. þm. nokkuð spanskt fyrir. Ég vil ekki segja, að hann hafi flutt hana af fordild, en trúa myndi ég því, ef hann segði mér það sjálfur.
Þá kenndi eigi síður viðkvæmni í ræðu hv. l. þm. Árn. Var svo að heyra, sem hann teldi andlegu lífi hjóðarinnar mikla hættu búna, ef felldur væri 600 kr. styrkur til Odds Oddssonar. Ég skal játa, að varhugavert væri að fella þenna styrk, ef satt væri, einkum þó vegna Árnessýslu. Annars voru flestar ræðurnar í svipuðum dúr, svo að ég sé ekki ástæðu til að fara nánar út í þá sálma.
Fyrir liggja ýmsar brtt., sem fjvn. hefir ekki haft ástæður til að athuga. Um brtt. á þskj. 202, sem felur í sér breytingu á aths. um styrkinn til Eimskipafél. Íslands, er það að segja, að ég get fallizt á hana, því að með henni er náð þeim tilgangi, sem n. stefndi að. Viðvíkjandi brtt hv. 2. þm. Rang. um aths. við fjárveitingu til vita og lendingarbóta er það að segja, að ég hefi ekki verið með öllu ánægður með það, hversu hlaðizt hefir utan á gjöld ríkissjóðs, og get því fallizt á brtt., þó langt sé frá því, að ég telji, að hér sé um ónauðsynlegar framkvæmdir að ræða. Nokkurt fé er ætlað til slíkra framkvæmda í mínu kjördæmi, en þó myndi ég frekar kjósa, að þær féllu niður en klípa af vegafénu. Annars geri ég ráð fyrir, að þessari heimild yrði ekki beitt nema í ýtrustu nauðsyn.
Ég vil endurtaka það, að ég vænti þess, að hv. d. sýni hina fyllstu gætni í afgr. gjaldahliðar fjárl., einkum þar sem þegar mun vera teflt á fremsta hlunn um tekjuáætlunina, svo að ekkert vit er í að gera sér vonir um, að nokkur tekjuafgangur verði.