07.08.1931
Efri deild: 23. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í C-deild Alþingistíðinda. (1812)
15. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.
Pétur Magnússon:
Eins og nál. á þskj. 192 ber með sér, hefir allshn. ekki getað orðið sammála um afgreiðslu þessa máls. Meiri hl. vill samþ. frv. eins og það liggur fyrir, en ég legg til, að frv. verði fellt. eins og ég gerði á síðasta þingi. Ég gerði þá nokkra grein fyrir því, hvernig á því stendur, að ég get ekki léð frv. fylgi mitt. Ég get ekki verið að endurtaka hér öll þau rök, er ég færði þá móti frv., en skal þó með örfáum orðum gera grein fyrir því, hvers vegna ég er andvígur því, að frv. þetta verði samþ.
Í fyrsta lagi er ég frv. mótfallinn vegna þess, að ég tel það óþarft. Í 63. gr. stjskr. eru ákvæði, sem heimila hinu opinbera að taka eignarnámi þær eignir, sem það þarf á að halda. Þessi ákvæði hafa alltaf verið skilin frjálslega. Ég veit ekki til þess, að hinu opinbera hafi nokkurn tíma verið neitað um að beita þessum ákvæðum, þótt ekki hafi virzt sterk rök fyrir nauðsyn þess, að eignarnám væri framkvæmt. Af þessum ástæðum er frv. því óþarft, en ekki er rétt að setja lög nema því aðeins, að þörf reki til.
Önnur ástæða, sem mér finnst að mæli móti frv., er sú, að forkaupsréttarákvæði hafa reynzt illa í íslenzkri löggjöf. Lögin um forkaupsrétt leiguliða hafa t. d. verið misnotuð í ríkum mæli. Reglan hefir áreiðanlega verið sú, að jarðirnar hafa verið boðnar hærra verði en þær raunverulega hafa átt að seljast. Sama máli gegnir um forkaupsrétt bæjarfél. á erfðafestulöndum. Það er því mjög vafasamt, að bæjarfélögin myndu hagnast á þessu frv.
Þá vil ég benda á það, að með frv. þessu er ekki náð þeim tilgangi, sem vakað hefir fyrir fylgismönnum frv., nefnil. að tryggja sveitar- og bæjarfélögum eignarhald á þeim eignum, sem þau þurfa á að halda. Frv. gerir þetta ekki kleift nema því aðeins, að sala fari fram á eignunum. Það er vitanlegt, að margar eignir eru ekki seldar svo áratugum skiptir, og eru ákvæði frv. því gagnslaus gagnvart þeim.
Þá benti ég einnig á það á síðasta þingi, að ekki væri óhugsanlegt, að ákvæði frv. yrðu misnotuð, þannig, að bæjar- eða sveitarstjórnir gætu beitt þeim til þess að útiloka menn, af pólitískum eða persónulegum ástæðum, frá því að stunda atvinnu sína, einkum í kaupstöðum.
Ennfremur gæti stafað af þessu óreiða á ýmsan hátt. Eignir gætu þá gengið kaupum og sölum án þess að kaupandi vissi nokkuð um kvaðir þær, sem á þeim hvíldu, fyrr en kaupin væru gerð. Það þyrfti a. m. k. að vera ákvæði í frv., sem gerði að skyldu að þinglýsa kvaðir þær, sem á eignunum hvíla, svo að kaupandi vissi jafnan, að hverju hann gengi, er hann gerði kaup sín. Hitt gæti valdið miklum óþægindum og truflunum, ef kvaðirnar kæmu fyrst í ljós eftir að kaupin væru komin í kring.
Ég álít, að þetta séu höfuðrökin, er mæli á móti því, að þessi löggjöf sé heppileg. Hv. þdm. verða svo að meta, hvort þeir kostir, sem kunna að vera við frv., vega upp á móti göllum þess, sem ég nú hefi bent á og sem ég tel ótvíræða.