08.08.1931
Neðri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)

132. mál, hýsing prestssetra

Frsm. (Sveinbjörn Högnason):

Þetta frv., sem hér liggur fyrir og flutt er af allshn., er orðið gamall kunningi hér í deildinni, þar sem það hefir verið borið fram á tveimur þingum áður. Það lá fyrir þinginu 1930, borið fram af stj., og á síðasta þingi var það borið fram af allshn. eins og nú. Ég býst við, að það muni einnig að þessu sinni daga uppi hér í d., þar sem svo er áliðið þingtímann, og frv. aðeins komið til 1. umr. Það er því ekki vert að fara um það mörgum orðum að sinni, þótt málið sé mjög nauðsynlegt og þyrfti skjótrar úrlausnar hjá Alþ.

Ef í fáum dráttum er skýrt frá, hversu byggingarmál prestssetranna hafa verið afgr. undanfarið, þá er það fyrst 1907, sem þingið byrjar að veita lán til bygginga á prestssetrum. Var ákveðið, að veittar skyldu 15 þús. kr. til þessa árlega, en þó eigi meir en 5 þús. kr. til hvers húss. Þegar nær dregur stríðstímunum, þá reynist ógerlegt að byggja fyrir svo litla upphæð, og er hún þá hækkuð upp í 5 þús. kr. til hvers húss. Þegar svo stríðið skellur á, reynist það einnig óframkvæmanlegt að byggja fyrir þessa upphæð nokkurt hús, enda er ekkert hús byggt á prestssetrum á þessu tímabili fram undir 1921. Þá er aftur sett löggjöf um það, að lán umfram þessar 5 þús. kr. skuli mega veita gegn afgjaldskvöð af prestssetrinu, þannig, að fyrir þann styrk greiði ábúandinn 4% í vexti og afborganir. Eftir þessum lögum má veita 5 þús. kr. styrk til hvers húss úr kirkjujarðasjóði, og síðan lán gegn afgjaldskvöð. Með þessum kjörum eru allmörg hús byggð á árunum 1921–28, eða um 14 hús alls. En meðalverð þessara húsa fer allmikið fram úr því, sem fært þykir að gera prestunum að greiða afgjaldskvöð fyrir. Meðalverð þessara 14 húsa er í kringum 25 þús. kr., og þó er ekki hægt að segja, að nema örfá þeirra séu fullgerð. Í flest þeirra vantar t. d. miðstöð, og yfirleitt er það svo, að aðeins nokkur hluti þessara 14 húsa er svo fullgerður, að viðunandi megi kalla. Þótt ég nefndi áðan 25 þús. kr. sem meðalverð, þá eru þó allmörg húsanna, sem komast upp fyrir það, tvö húsin t. d. hafa kostað 34–35 þús. kr. Þegar svo dýrt var orðið að byggja, þótti ófært að gera prestum að skyldu að greiða afgjaldskvöð fyrir allan styrkinn, en í stað þess var tekin upp sú venja, að láta þá aðeins greiða af fyrstu 15 þús. kr., eða mest 600 kr. fyrir hvert hús. Hitt, sem fram yfir er, verður að skoðast sem kvaðalaus styrkur. Kvaðalaus styrkur til húsabygginganna var þá, þar sem hann var mestur, upp undir 20 þús. kr. Þegar svo var komið, þá var það orðið óhæfilega erfitt fyrir ríkissjóð og ábúandann á prestssetrinu að rísa undir þessum útgjöldum. Þess vegna var það, að þrátt fyrir hina miklu ívilnun ríkissjóðs fram yfir það, sem lög stóðu til, var kvöðin orðin óbærileg, og varð æ þyngri eftir því sem meiri kröfur voru gerðar um varanleika húsanna og þægindi. Það var fullkomlega nóg fyrir prestana að þurfa að standa undir þessum 15 þús. kr., og því til skýringar ætla ég að gefa sundurliðað yfirlit um kvaðir þær, sem á einu prestssetri hvíla nú. Tek ég það sem dæmi; sumstaðar er minna, en sumstaðar aftur á móti meira.

Afgjaldskvöð af 15 þús. kr.

kr. 600.00

Fyrningargjald af húsinu

— 122.50

Brunabótagjald

—50.00

Ársgjald af 8600 kr. (lán úrræktunarsjóði til annara bygginga)

—793.50

Brunabótagjald af ræktunarsjóðsláni

— 46.80

Afgjald af jörðunni

— 220.00

Girðingargjald

— 22.00

Fasteignaskattur

— 37.00

Alls kr.1891.80

Við þetta bætist, að presturinn á í húseign á þessari jörð sem, svarar kr. 8600, og ef afgjaldskvöð væri tekin af því, er hann fer, þá bættust við kr. 602.00. Þá væri komin afgjaldskvöð af þessum jörðum, sem næmi hvorki meira né minna en 2500 kr. Hin litlu byrjunarlaun prestsins eru algerlega horfin í þessi gjöld. Það er enginn efi á því, að svona verður það orðið á flestum prestssetrum innan skamms, ef ekkert er að gert frá hálfu hins opinbera. Þetta var það, sem vakti fyrir mþn. í kirkjumálum, þegar hún tók til athugunar, á hvern hátt væri hægt að létta af ríkissjóði þessari byrði, sem er orðin afarmikil, og jafnframt gera ábúendum prestssetranna auðveldara að standast kostnaðinn við jarðirnar. Að áliti n. er ekki nema ein leið fær til þessa, og hún er sú, að draga úr byggingarkostnaðinum, með því að skapa meira aðhald m. a., og dreifa honum á fleiri aðila.

Úr byggingarkostnaðinum hugði n., að hægt væri að draga á þann hátt, að breyta til og láta fyrsta fjárframlagið til húsanna vera kvaðalaust, en ekki hið síðasta, eins og gert er eftir núgildandi lögum. Eins og tekið er fram í 2. gr. frv., má veita kvaðalausan styrk fyrst og síðan lán úr kirkjujarðasjóði, og það, sem fram yfir er, lenti á prestunum sjálfum eða þeim, sem léti byggja. Með þessu móti er hægt að skapa aðhald, svo að húsin yrðu ekki eins óhæfilega dýr og nú tíðkast. Nú er alveg sama, hvernig prestarnir byggja. Það lendir alltaf á þá að greiða af 15 þús. kr., en ekkert meira hversu langt sem húsverðið fer fram úr þeirri upphæð. Þeir, sem byggja fyrir 15 þús. kr., og þeir, sem byggt hafa fyrir 34 þús. kr., þurfa báðir að greiða jafnt, 15 þús. kr. Þetta er, eins og allir hljóta að sjá, afaróeðlilegt og skapar ekkert aðhald við byggingarnar. Hinsvegar ætlast n. til, að um leið væri hægt að dreifa kostnaðinum eitthvað, t. d. með því að láta aðflutningana lenda á söfnuðinum og gröftinn o. fl. á prestinum. Þetta hefir allshn. ekki viljað fallast á, og hefir því fellt það úr frv. eins og hún nú flytur það. Sömuleiðis eru komnar fleiri smábreyt. á frv. frá því að kirkjumálan. afgr. það. Yfirleitt eru margar þær breyt., sem allshn. hefir gert á frv., til bóta fyrir ábúendurna, og ganga feti lengra en kirkjumálan. þorði að fara í upphafi. T. d. hefir allshn. fundizt sanngjarnt, að kvaðalaus styrkur gæti orðið eins hár og áður, meðan ekki var fastákveðið hámark. Þá gæti styrkurinn í sumum tilfellum orðið 18–20 þús. kr., en nú getur hann orðið 15–18 þús. kr. Aðrar verulegar breyt. hafa ekki verið gerðar á frv.

Síðari hluti frv., um byggingu peningshúsa, hafði verið felldur niður af allshn. í fyrra, og ekki var hann heldur í frv. þegar stj. flutti það, en hann er nú tekinn hér upp aftur, en þó með þeim fyrirvara, að allshn. er ekki alveg sammála um einstök atriði, og hefir því óbundnar hendur í því efni.

Það, sem fyrir mér vakti, þegar ég vildi taka upp þennan kafla, var það, að ekki er síður nauðsyn fyrir ríkið að hafa eftirlit með byggingum útihúsa á prestssetrum, þar sem það er orðin föst venja, að prestarnir byggi útihús á jörðunum á sinn kostnað, og svo þegar þeir fara frá og nýr prestur kemur í staðinn, þá kaupir ríkið öll húsin, og afgjaldskvöðin, 4%. leggst á nýja ábúandann. Þetta fyrirkomulag veitir prestunum ekkert aðhald. Þeir geta byggt alveg eftir því, sem hverjum og einum sýnist, þegar þeir vita, að keypt verður af þeim, hversu óeðlilega dýrt sem þeir hafa byggt. Útihús eru nú orðin svo dýr, að ekki er alltaf hægt fyrir einstaklinga að byggja þau eins fullkomin og þau þyrftu að vera, og ef ríkið á að kaupa þau einhverntíma seinna, þá er alveg sjálfsagt, að stj. séu sendar teikningar að húsunum, og að húsin séu því aðeins byggð, að stj. samþykki uppdrættina. Í þessu frv. er ætlazt til, að ef stj. samþ. teikningarnar, þá skuli ríkið leggja til útlenda byggingarefnið sem fjárframlag til bygginganna. Hitt getur svo presturinn unnið af sér sem kvöð, sem hvílir á jörðunni.

Þetta er ábúanda vitanlega mikið hagræði, en ég álít, að í þessu sé ennþá meiri nauðsyn fyrir það opinbera. Þegar sú regla hefir verið tekin upp að kaupa húsin af fráfaranda, álít ég heppilegt, að hið opinbera hafi ákvörðunarrétt um það, hvernig eigi að byggja í hverju einstöku tilfelli, svo að það verði í sem beztu samræmi við þörf jarðarinnar.

Ég þarf svo ekki að fjölyrða um þetta. Hv. þdm. er svo vel kunnugt um, að þetta þarfnast mjög skjótrar úrlausnar. Að öðru leyti vísast til grg. mþn. í kirkjumálum, þar sem þetta er skýrt rækilega.