22.08.1931
Neðri deild: 36. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í C-deild Alþingistíðinda. (1861)
15. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.
Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):
Ég skal ekki verða langorður. Hv. 1. þm. Rang. hélt, að þetta frv. yrði til að auka brask eða spekulation. Það er engin ástæða til að ætla, að þetta auki brask frekar en forkaupsréttarlögin á jörðum, sem gilt hafa langan tíma. Og ef ákvæðin um forkaupsrétt að jörðum hafa ekki orðið valdandi neins brasks með jarðir í sveit, þá er ekki nokkur minnsta ástæða til að ætla, að þetta frv. auki fremur brask í kaupstöðum.
Það getur vel verið, að eignin verði dýrari með þessu móti en með eignarnámi. En eignarnám er alls ekki útilokað með þessu. Og það er engin ástæða til að ætla, að eignarnámsheimild verði ekki notuð þrátt fyrir þetta og þar, sem svo stendur á. Hún verður auðvitað notuð eftir sem áður þar, sem skilyrði eru fyrir hendi til þess.