22.08.1931
Neðri deild: 36. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í C-deild Alþingistíðinda. (1864)
15. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.
Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):
Út af því, sem hv. l. þm. S.-M. sagði, að þetta frv. mundi ríða í bága við l. um forkaupsrétt á jörðum, verð ég að segja, að ég álít, að það eigi sér ekki nokkurn stað. Þetta frv. nær aðeins til þess, að tryggja bæjarfélögum og kauptúnum, sem eru sérstakt hreppsfélag, forkaupsrétt á hafnarmannvirkjum o. s. frv. innan lögsagnarumdæmisins eða hreppsins, en í hinum 1. er aðallega átt við jarðir. En þegar kauptún er sérstakt hreppsfélag, eru ekki jarðir innan þess. (MG: Þess eru þó dæmi). Þá er kauptúnið ekki sérstakt hreppsfélag, þó það séu ekki nema 1 eða 2 jarðir. Annars get ég ekki skilið þá hugsun, að meira brask eigi sér stað, þó einhver hafi forkaupsrétt. Ég hefði hugsað, að meira brask ætti sér stað þar, sem engin höft eru, allt er laust og frjálst og enginn þarf að víla fyrir sér að bjóða. En bærinn getur heimtað sannanir, tryggt sér að fá eignirnar fyrir sama verð og hægt er að skaffa sannanir fyrir, að aðrir hafi boðið.