22.08.1931
Neðri deild: 36. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í C-deild Alþingistíðinda. (1865)

15. mál, forkaupsréttur kaupstaða á hafnarmannvirkjum o.fl.

Pétur Ottesen:

Mér þykja það undarlegar lagaskýringar hjá hv. þm. Barð., að það sé ekki rétt, sem hv. 1. þm. S.-M. sagði, að ákvæðin um forkaupsrétt kaupstaða á hafnarmannvirkjum o. fl. í þessu frv. stangist við l. um forkaupsrétt á jörðum. Það stangast svo við þau l. á svo mörgum stöðum, að það nær ekki nokkurri átt, að Alþ. samþ. þetta frv., að hinum lögunum óbreyttum. Ég get aðeins bent á næsta kauptún hér við Reykjavík, Akranes. Innan kauptúnsins eru nokkrar jarðir, sem metnar eru til dýrleika á sama hátt og jarðir almennt í sveitahreppum. (BJ: Þá er kauptúnið ekki sérstakt hreppsfélag). Jú, sannarlega er það sérstakur hreppur. Þingið getur þess vegna ekki látið slíka löggjöf frá sér fara, og verð ég að segja það, að það er ógeðslegur stimpill, sem sá lögfræðingur er að setja á sig, sem er að mæla með, að slíkt verði gert.