18.08.1931
Efri deild: 32. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1868)

132. mál, hýsing prestssetra

Frsm. (Magnús Torfason):

Frv. þessa efnis hefir áður legið fyrir Alþingi, svo að þetta mál hefir fengið allmikinn undirbúning. Á vetrarþinginu var þetta mál borið fram sem stjfrv., en allshn. Nd. breytti því talsvert. Í stjfrv. var gengið út frá því, að byggð skyldu 4 prestssetur á hverju ári, en allshn. þótti það um of og lagði til, að aðeins yrðu byggð 2 prestssetur á hverju ári. Ennfremur var ákveðið, að ríkissjóður greiddi 2/3 af kostnaðarverði, en þó ekki yfir 18000 kr. til hvers húss. M. ö. o., húsið má ekki verða yfir 27000 kr., annars kemur presturinn til að borga það, sem fram yfir er. Upphaflega var það í frv. 15–18 þús. kr., en það varð að ráði í Nd., samkv. brtt., sem fram kom við frv., að hafa það ótakmarkað að neðan, og ég er ekkert á móti því. Það er að vissu leyti til bóta, ef kostnaðurinn skyldi verulega fara niður.

Það er talin sæmileg bygging á helmingi, en léleg á þriðjungi prestssetranna. Það eru þá nálægt 4 prestssetur, sem þarf að bæta á ári. Og hugsunin í frv. er sú, að þetta verði gert á næstu 15–20 árum. N. þótti ekki ástæða til að hraða þessu frekar en svo, og ég lýst við, eins og tímarnir eru nú og fjárskortur alla vega, að þessari hv. d., sem vill fara gætilega, þyki þetta vel orðið. Ég vil bæta því við frá sjálfum mér, að það er ein ástæðan til þess að hlynna að prestssetrunum, að þá fyrst, er svo er orðið, getur komið að því að gera skilnað ríkis og kirkju.

Vildi ég svo vona, að hv. d. tæki vel í þetta mál.