22.08.1931
Efri deild: 39. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1191 í B-deild Alþingistíðinda. (1879)
132. mál, hýsing prestssetra
Jón Þorláksson:
Ég hefi í sjálfu sér ekki miklu við að bæta. — Hv. 3. landsk. og hæstv. dómsmrh. hafa vitnað í það, að byggingar- og landnámssjóður legði aðeins fram 10 þús. kr. til bændabýlanna, og ekki viljað gera mikinn mun á þeim og prestssetrunum. Við því er í sjálfu sér ekkert að segja, en mér er kunnugt um, að miklir erfiðleikar hafa reynzt á því að koma upp sæmilegum bændabýlum fyrir þær upphæðir, sem sjóðurinn hefir viljað lána, og bændur eru í sárustu vandræðum með að leggja fram frá sjálfum sér það fé, sem á vantar til þess að geta gert húsin sæmilega úr garði, og það er það versta, sem hægt er að gera mönnum, að styrkja þá, en styrkja þá ekki meira en það, að þeir verða að sitja fastir í skuldum, ef verkið á að vera sæmilega af hendi leyst. Það mun vera svo víða, að bændur, sem ráðizt hafa í að byggja hjá sér, sitja með 3–4 þús. kr. í lausaskuldum og sjá ekki fram úr, hvernig þeir eigi að sleppa frá þeim, með öðru móti en að selja húsin og jarðirnar.
Ég er hræddur um, að brtt. hv. 3. landsk. yrði til að draga prestana út í sömu vandræðin, því að ef lánin nægja ekki, þá býst ég við, að prestarnir verði að fá viðbótarlán í eigin nafni og þá beri allt að sama brunni. Þetta álít ég illa farið, en einnig legg ég áherzlu á hitt, að þegar ríkið fer að byggja, þá er sjálfsagt, að það vandi byggingar sínar, en skeri ekki allt svo við nögl sér, að þær verði óviðunandi og úreltar löngu áður en eðlilegur tími er liðinn frá byggingu þeirra.
Ég vildi skjóta því til hæstv. dómsmrh. í sambandi við það, sem hann var að tala um San-Fransisko, að ég held einmitt, að þau vandræði, sem byggingar- og landnámssjóður og viðskiptavinir hans hafa ratað i, eigi rót sína að rekja til þess, að gerðar eru kröfur um varanlegt byggingarefni, en það er allt, sem kemur í bága við, að hlutaðeigendur geti byggt fyrir framtíðina. Arðurinn er nú svo lítill af jörðunum, að þær bera sig ekki með dýrum byggingum, og held ég því, að menn neyðist til að slaka til með varanleika byggingarefnisins, en þegar ræktunin eykst, vaxa skilyrðin fyrir slíku. Inn á þá braut, að byggja ekki úr varanlegu efni á prestssetrunum, álít ég því ekki rétt að fara, enda yrði slíkt aðeins aukinn kostnaður fyrir ríkið.