08.08.1931
Neðri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í B-deild Alþingistíðinda. (1899)

26. mál, hafnargerð á Akranesi

Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):

Ég mun ekki fjölyrða um þetta mál að sinni. Það hefir nú legið fyrir tveimur undanförnum þingum, og hefir þess vegna gefizt góður tími til að athuga það. Ég ætla því, í stað þess að fara að rekja forsögu málsins, að snúa mér að nál. meiri hl. sjútvn. á þskj. 186.

Þær breytingar, sem n. leggur til, að gerðar verði á frv., eru í einu og öllu samstæðar þeim till., sem komu frá minni hl. sjútvn. á síðasta þingi, en meiri hl. sjútvn. á þinginu 1930. Aðalbreyt. er í því fólgin, að meiri hl. n. fylgir þeirri meginreglu, sem gilt hefir um fjárveitingar úr ríkissjóði til hafnargerða, og leggur því til, að framlag ríkissjóðs verði ákveðið 1/3 stofnkostnaðar í stað 2/5 eftir frv. Aftur á móti vili n. færa nokkuð upp heimild lánsábyrgðar fyrir hafnarsjóð vegna nauðsynlegrar lántöku. Eftir till. n. lækkar framlag ríkissjóðs um 80 þús. kr., en lánsábyrgðarheimild vegna hafnarsjóðs hækkar að sama skapi.

Finn ég svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta frekar og læt því staðar numið í bili.