17.07.1931
Neðri deild: 3. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í B-deild Alþingistíðinda. (19)

1. mál, fjárlög 1932

Héðinn Valdimarsson:

Ég verð að segja, að þau litlu svör, er hæstv. forsrh. hefir gefið við fyrirspurnum mínum, eru ekki sannfærandi. Ástæðan fyrir því, að ekki væri gefið yfirlit yfir fjárhag ríkissjóðs þessu fyrstu mánuði, kvað hann veru þá, að útflutningur væri lítill og litlar tekjur í ríkissjóð. Það er engin ástæða til þess að dylja þingmenn og þjóð þess, þótt það sé vandræðafjárhagur hjá ríkissjóði.

Hæstv. forsrh. sagði, að skýrsla væri komin til fjhn. En hann veit, að ekki sitja allir dm. í þeirri nefnd, svo að þar með er ekki tryggt, að upplýsingarnar komist til allra. Ég tel það fyrstu skyldu fjármálaráðherra að hylja ekki ástandið í landinu og fjárhag ríkissjóðs, heldur sýna það sem gleggst um leið og fjárlagafrv. er lagt fram. Ég endurtek því áskorun mína um, að ráðh. komi með nákvæma skýrslu um sex fyrstu mánuði ársins við framhald þessarar umr.

Þá gaf hæstv. forsrh. fá svör um bókina „Verkin tala“. Mér er satt að segja forvitni á að vita, hvað í þessari bók stendur, sem ríkisstj. álítur svo mikils virði, að kosta á útgáfu fyrir 20–30 þús. kr. og gefa út mörg þús. eint. af, og hvað því veldur, að þessi eintök skuli endilega hafa þurft að fara öll til þeirra manna, sem hafa grasbýli, en engin til kaupstaðanna. Hæstv. ráðh. sagði, að bókin væri seint útsend. En það er meira en mánuður síðan bókinni var ekið á pósthúsið. Hitt er vitanlegt, að hæstv. stj. hefir valdið því, að eintök voru ekki send í kaupstaðina. Nú vil ég skora á hæstv. stj. að senda tiltölulegan hluta til allra þeirra manna, sem heimili eiga í kaupstað, nema svo sé, að ríkisstj. sé búin að gera bókina upptæka, og geti þá allur almenningur dæmt af eigin lestri bókarinnar um nauðsyn útgáfu hennar.