08.08.1931
Neðri deild: 24. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1198 í B-deild Alþingistíðinda. (1903)
26. mál, hafnargerð á Akranesi
Frsm. minni hl. (Jóhann Jósefsson):
Vegna þess að ég var kallaður frá til viðtals, komst ég ekki fyrr inn í umr.
Eins og sjá má á nál. sjútvn., hefi ég ekki getað orðið sammála meiri hl. n. um framlag ríkissjóðs til hafnargerðar á Akranesi. Ég sé enga ástæðu til þess að hverfa frá þeim grundvelli, sem meiri hl. sjútvn. lagði á vetrarþinginu, en hann var sá, að ríkissjóður styrkti hafnargerðir sem hér um ræðir að 2/5 í stað 1/3, sem meiri hluti n. leggur nú til að veitt verði.
Hv. frsm. meiri hl. vitnaði í þessu sambandi til Vestmannaeyjahafnar, en það, sem hv. frsm. sagði um framlag ríkissjóðs til þeirrar hafnar, var ekki vel nákvæmt. Höfnin eða það, sem þar upphaflega var unnið af hafnarbótum, var gert eftir lögum frá 1913 og var styrkur úr ríkissjóði þar ákveðinn ¼ kostnaðar, en hafnarsjóður átti að greiða ¾, og eftir því hlutfalli var unnið að hafnargerð í Vestmannaeyjum á tímabilinu 1913–1923. Raunin varð sú, að hafnarsjóður Vestm. gat ekki risið undir því að greiða ¾, og síðan 1923 hefir þingið styrkt hafnargerð í Vestmannaeyjum með fjárframlögum, og hefir venjan þá verið sú, að 1/3 hefir verið greiddur úr ríkissjóði. En þetta hafa aðeins verið litlar fjárveitingar og skipta því ekki máli í þessu sambandi, sem hér um ræðir, að öðru leyti en því, að þetta dæmi frá Vestmannaeyjum sýnir, hve óviturlegt það er, að leggja allt of þungar byrðar á héruðin vegna slíkra mannvirkja. Þess ber líka að gæta, að hafnarsjóður fær engar beinar tekjur af mannvirkjunum meðan á hafnargerðinni stendur. Það er fyrst þegar mannvirkin eru fullger, sem ávöxturinn kemur í ljós með aukinni verzlun, ódýrari farmgjöldum o. s. frv.
Ég hefi rökstutt það á undanförnum þingum, að árið 1929 hafi orðið straumhvörf í þessu efni hér á þingi. Sú stjórn, sem þá sat við völd og má segja, að nú sitji við völd, flutti þá frv. um hafnargerð á Skagaströnd. Með því frv. var farið inn á nýja braut í þessum málum. Þar var lagt til, að ríkið legði fram helming, en hinn helmingurinn yrði lánaður úr Viðlagasjóði. Hér var stigið djarft spor í þá átt, að gera mögulegt að koma upp hafnarbótum án þess að hlutaðeigandi kauptímum eða héruðum væri bundinn of þungur baggi.
Það fór svo, að till. stj. náði ekki að fullu fram að ganga. En meðferð málsins sýnir skýrt, að menn hafa séð, að framlögin hafa áður verið skorin um of við neglur, því að brtt., sem fram kom um að færa ríkissjóðstillagið niður í 1/3, var felld. Að lokum var samþ., að tillag ríkissjóðs skyldi vera 2/5.
Þetta kemur fram, þegar séð er, að tillag ríkissjóðs til Vestmannaeyjahafnar er allt of lágt og Vestmannaeyingum gert ómögulegt að rísa undir kostnaðinum.
Það hefir verið sýnt, að við hafnargerðina í Borgarnesi hefir verið fylgt allt öðrum reglum en meiri hl. n. vill fylgja. Hér skiptir það engu máli, þótt hafnargerðin í Borgarnesi sé um leið samgöngubót. Hafnarbætur eru það alltaf um leið og þær bæta aðstöðu sjávarútvegsins.
Hv. frsm. dregur í efa, að ríkissjóðstillagið til hafnarinnar í Vestmannaeyjum hafi aflað ríkissjóði þeirra tekna, sem hann hefir fengið á síðasta ári, um 600 þús. kr. Ef maður vill komast fyrir það, hverju þessar tekjur eru að þakka, þá má fyrst og fremst benda á það, að allar þessar tekjur, að undanskilinni jarðaleigunni, eru beinn eða óbeinn afrakstur útgerðarinnar. Og þessum 100 báta flota, eða þar um, sem stundar þar veiði, væri þar óvært, ef hafnarbætur hefðu ekki verið gerðar. Það eru hafnarmannvirkin, sem eiga drýgstan þáttinn í vexti bátaútvegsins og má því til sanns vegar færa, að það eru þau, sem óbeinlínis gefa ríkissjóði þær tekjur, sem hann fær af Vestmannaeyjum.
Um Akranes, sem hér er um að ræða, er það vitað, að útgerðin er þar blómleg. Það þarf enga spádóma um, að þar muni rísa upp blómleg útgerð. Hún er þar nú þegar. Það er stór og efnilegur bátafloti á Akranesi og fiskiveiðar reknar þar með dugnaði og kappi, eins og vitanlegt er.
Í nál. meiri hl., sem sjá má á þskj. 195 í Alþt. frá vetrarþinginu, er þetta tekið fram, þar sem bent er á það, að Akranes er komið í tölu stærri fiskiútflutningsstaða hér við land. 1929 var t. d. fiskiútflutningur þaðan hátt á 11. þús. skpd. Einnig er þar á það bent, að bátaflotinn er bæði stór og myndarlegur. Bátarnir eru um 20 talsins, allir nýtízkubátar, 2 gufuskip, 8 opnir vélbátar. Af þessu er ljóst, að hér er um efnilega veiðistöð að ræða.
Ég hefi áður haldið því fram, og sömuleiðis meiri hl. sjútvn. á vetrarþinginu, að framlög til að bæta aðstöðu útvegsins. eins og á Akranesi, gefa beinan og óbeinan arð. Vestmannaeyjar hafa sýnt það bezt. Ég held, að það sé full ástæða fyrir hv. þd. að athuga það, að þegar um svo kostnaðarsamar athafnir er að ræða eins og hafnargerðir, þá er það ekki verk, sem aðeins núlifandi kynslóð á við að búa, heldur leggur það grundvöll um leið að bættri afkomu í framtíðinni. Og ríkið fær svo að njóta ávaxtanna af starfi þegnanna á þessum stöðum á komandi árum og áratugum.
Þess vegna er það mjög varhugavert, að ríkið haldi áfram þeim sið, að hafa fjárframlög svo lítil, að sýnt sé, að héruðin geti ekki risið undir sínum hluta. Ég sé ekki, að það sé neitt heppilegt að miða fjárframlög þingsins við það, að sýnt sé, að ríkið þurfi síðar meir að taka á sínar herðar þann kostnað, sem upphaflega var ætlaður héraðinu.
Nú er af minni hl. ekki farið fram á það, að þessi hafnargerð sé styrkt á sama hátt og stjórnin lagði til á sinni tíð, að lagt væri til hafnargerðarinnar á Skagaströnd, heldur er farið fram á aðeins 2/5.
Það má vel vera, að hægt sé að segja, að ríkissjóður megi ekki við því að leggja fram meira en 1/3. En ef á það er litið, að hve miklu gagni þessi framkvæmd yrði, þá má alveg eins segja, að ríkissjóður hefir ekki efni á því að skera framlög svo við neglur sér, að ekkert geti af framkvæmdum orðið. Og ég óttast, að svo yrði, ef samþ. yrði till. meiri hl. n. Af þessum ástæðum tel ég rétt og skylt að leggja með því, sem meiri hl. hélt fram á vetrarþinginu, og komið hefir svo greinilega fram í afskiptum þingsins af öðrum hafnarmannvirkjum, síðan þingið tók þá ákvörðun 1929, að leggja svo ríflega fram, að minni hætta sé á því en áður, að íbúar hlutaðeigandi héraða sligist undir sínum hluta.